Jump to ratings and reviews
Rate this book

Drón

Rate this book
Þegar líkami Heiðrúnar Sólnes, efnilegustu knattspyrnukonu landsins, virðist geta spáð fyrir um dularfullar árásir dróna víða um heim óttast hún að hún sé að missa vitið. Angistin breytist í algjöran hrylling þegar Ísland verður fyrir árás. Árásirnar eru þó aðeins eitt af mörgum vandamálum sem þessi viðkvæmi sumarstarfsmaður Reykjavíkurborgar stendur frammi fyrir; faðir hennar óttast að Kötlugos leggi samfélagið á hliðina, neyðarlegt myndband á netinu gæti kollvarpað framtíð hennar og í þokkabót er hún skotin í flokksstjóranum sem reykir mentólsígarettur og elskar verslunarmiðstöðvar. DRÓN er glæsilega skrifuð og óvenjuleg skáldsaga, stútfull af óstöðvandi hugmyndaflugi, ferskum húmor og pælingum um tækni og mennsku, sannleika og firringu, en um leið þroskasaga unglings sem vill ekki lengur lúta fjarstýringu annarra.

244 pages, Kindle Edition

First published October 13, 2014

1 person is currently reading
39 people want to read

About the author

Halldór Armand

9 books31 followers
Halldór Armand Ásgeirsson (f. 1986) lauk meistaraprófi í lögum við Háskóla Íslands árið 2012 og hlaut nýræktarstyrk Miðstöðvar íslenskra bókmennta fyrir handritið að fyrstu skáldsögu sinni, Vince Vaughn í skýjunum (2013). Síðan þá hafa komið út Drón (2014), Aftur og aftur (2017), Bróðir (2020) og nú síðast Mikilvægt rusl (2024). Hann hefur einnig sent frá sér esseyjusafnið Við erum bara að reyna að hafa gaman (2022). Bækur hans hafa komið út á fjölda tungumála og pistlar hans um samfélagsleg málefni njóta mikilla vinsælda.

Halldór Armand Ásgeirsson (b.1986) is one of the young, extraordinary voices on the Icelandic literary scene. He completed a master’s degree in law at the University of Iceland in 2012 and received the Greenshots Award for the manuscript of his debut novel, Vince Vaughn in the Clouds (2013). Since then, he has published Drone (2014), Again and Again (2017), Brother (2020), and most recently, Important Trash (2024). He has also released the essay collection We’re Just Trying to Have Fun (2022). His books have been published in several languages, and his essays on social issues are highly popular.


Ratings & Reviews

What do you think?
Rate this book

Friends & Following

Create a free account to discover what your friends think of this book!

Community Reviews

5 stars
9 (11%)
4 stars
27 (34%)
3 stars
34 (43%)
2 stars
8 (10%)
1 star
1 (1%)
Displaying 1 - 5 of 5 reviews
Profile Image for Benedikt Skúlason.
28 reviews2 followers
April 3, 2015
Virkilega frábær bók og umhugsunarverð. Hressandi að lesa verk eftir höfund sem er í tengslum við ungt fólk. Tækni og samband hennar við samtímann, framtíðina og margt fleira. Við lifum í tæknibyltingu og hvernig sem fer verður sálartetur mannsins að finna leið.
Profile Image for Karen Þorsteinsdóttir.
20 reviews7 followers
September 24, 2021
3,5*
A
Fersk og áhugaverð saga. Á köflum ískrandi súr og höfundur er svo flinkur að skrifa að mér leið illa með sjálfa mig að hafa aldrei hugsað svo djúpt á ævinni.
Maður veit ekkert hvert sagan er að fara og hvernig í andskotanum túrverkir og hryðjuverkasprengjur ættu að tengjast en þessar undarlegu aðstæður blandast mjög vel saman við íslenska hversdagsleikann.
Tengdi oft við Heiðrúnu hafandi einu sinni verið unglingsstelpa, æfandi fótbolta og skotin í illa lyktandi slána.
Profile Image for Dabbi.
32 reviews
February 24, 2025
las þessa núna því ég er svo hrifinn af Mikilvægt rusl eftir saman höfund. Verð að segja að þessi er einfaldlega betri algjör snilli. stundum of djúpar pælingar fyrir mig en svo ÓGEÐSLEGA fyndið að tengja konu á þessum tíma mánaðar við bombuárásir ég meina HVER KANNAST EKKI VIÐ ÞAÐ?

Rósa frænka túr blæðingar sama hvað það er kallað algjör Hamas árás eins og þessi bók 5 stjörnur frá The DAbb
Profile Image for Kristjan Johannesson.
12 reviews
January 11, 2015
Ágætis bók að mörgu leyti en höfundur virðist stundum vera með hausinn í skýjunum í heimspekilegum pælingum. Vel þess virði að lesa.
Displaying 1 - 5 of 5 reviews

Can't find what you're looking for?

Get help and learn more about the design.