Jump to ratings and reviews
Rate this book

Dalalíf #1

Dalalíf I: Æskuleikir og ástir

Rate this book
"Engum sem farið hefur um Hrútadal dylst það að hann er með fegurstu sveitum landsins." Þannig hefst Dalalíf, stórvirki Guðrúnar Árnadóttur frá Lundi. Hreppstjórinn Jakob Jónsson býr á stórbýlinu Nautaflötum í Hrútadal, ókvæntur og barnlaus. Á miðjum aldri sækir hann sér óvænt brúði í næsta hérað. Lísibetu Helgadóttur. Jón, sonur þeirra, verður sjálfskipaður foringi barnanna af næstu bæjum og þegar þau vaxa úr grasi álítur leiksystirin Þóra í Hvammi sig heitbundna honum. En Lísibet hefur annað konuefni í huga handa syni sínum ..

209 pages, Kindle Edition

First published January 1, 1946

16 people are currently reading
117 people want to read

About the author

Guðrún frá Lundi

28 books18 followers

Ratings & Reviews

What do you think?
Rate this book

Friends & Following

Create a free account to discover what your friends think of this book!

Community Reviews

5 stars
91 (29%)
4 stars
144 (46%)
3 stars
67 (21%)
2 stars
3 (<1%)
1 star
3 (<1%)
Displaying 1 - 21 of 21 reviews
Profile Image for Katrín Tómasdóttir.
14 reviews1 follower
May 18, 2020
Tók skyndiákvörðun í gær að taka þessa út af bókasafninu. Æðisleg saga, átti erfitt með að leggja bókina frá mér og mun örugglega fara á bókasafnið að sækja næsta bindi bráðum.
Profile Image for Ásta Þórarins.
8 reviews
October 15, 2019
Þessi bók kom mér svemmtilega á óvart. Hélt að þetta væri rómantísk upphafning á sveitalífinu í "gamladaga". En það skjátlaðist mér stórkostlega. Það besta við bókina að mínu mati er allt sem er sagt milli línanna, og það er hellingur. Setningar eins og "Hún vissi hvað klukkan sló, án þess að telja slögin" eru auðvitað hrein snilld. Hér er að sjálfsögðu verið að tala um allt annað en klukku og tíma. Ég hlustaði á bókina á Storytel og hreinlega hlustaði hvar og hvenær sem ég hafði tök á og er að sjálfsögðu byrjuð á næstu bók og hlakka mikið til.
Profile Image for Halla Kolbeinsdottir.
79 reviews12 followers
August 8, 2023
Alveg merkilega skemmtilegt að lesa um ástir og raunir einhvers bóndafólks í einhverjum dal fyrir tíma símans.
Bókin er skemmtilega skrifuð. Leikendur birtast ljóslifandi fyrir augum mér og líf þeirra trúverðugt. Mér finnst gaman að fá innsýn í annað líf og aðra tíma, með allt öðrum ryþma en við erum vön í dag.
Svo er einstaklega skrítið að lesa þessa gömlu íslensku og skilja stundum ekkert hvað er verið að meina. Hollt og gott!
Profile Image for Valgerður María Þorsteinsdóttir.
39 reviews2 followers
October 24, 2021
talented, brilliant, incredible, amazing, show stopping, spectacular, never the same, totally unique, completely not ever been done before, unafraid to reference or not reference, put it in a blender, shit on it, vomit on it, eat it, give birth to it.
Profile Image for Karl Hallbjörnsson.
677 reviews73 followers
January 9, 2020
Þessi kom mér skemmtilega á óvart. Hún byrjaði eins og tiltölulega hjákátleg saga um rómantík en eftir dálitla stund fer maður að koma auga á hvernig hún er að vissu leyti líka pólitísk og siðferðileg en jafnframt afar persónu-leg (ekki persónuleg qua Guðrún heldur persónu-leg í skilningi hugtaksins um persónuna sem slíka) hugleiðing. Það var gaman að fylgjast með öfundsýkinni og duldu valdabaráttunni sem átti sér stað. Mæli sterklega með. Veit ekki hvort ég held áfram í næstu bindi—en það er alls ekki ómögulegt
Profile Image for Karla.
23 reviews4 followers
Currently reading
January 2, 2023
This is going to take me a LONG time to read, because not only am I reading it, it's only available in Icelandic which means I'm basically translating it as I go. And I only have an Icelandic level of somewhere between B1-B2. Yeah, I know I'm nuts.
Profile Image for Laulau Birgisdóttir.
4 reviews3 followers
January 10, 2023
Frábær fyrritímaheimild. Gull fyrir Íslendinga. Ótrúlega sannfærandi bók með persónugallerýi upp á 10. Staðháttarlýsingar, veðurlýsingar. Samræðurnar gætu allt eins verið að fara fram á Facebook í dag. Hef aldrei lesið bækurnar hennar áður og skil ekki alveg af hverju. Býst við að það hafi verið e-s konar fordómar. En ég mun háma í mig allavega allar Dalalífsbækurnar til að byrja með.
Profile Image for Silvía.
22 reviews
May 8, 2024
Allt svo raunverulegt og ljóslifandi
Profile Image for Kristín.
555 reviews12 followers
August 13, 2019
Merkilegt hvernig bækur Guðrúnar þóttu ekki nógu góðar fyrir bókmenntasöguna þrátt fyrir að hún væri mest lesni höfundur landsins. En kannski pínu týpískt. Íslendingar máttu heldur ekki lesa sakamálasögur fyrr en Arnaldur rauf þann múr. En ég var að lesa Dalalíf í fyrsta sinn og hafði gaman af. Er strax byrjuð á næstu bók.
Profile Image for Dagný Davíðsdóttir.
37 reviews
January 18, 2023
Elska elska elska. Málfarið er konfekt 👏👏👏 þetta er eins og Hroki og Hleypidómar eða Downton Abbey nema í íslenska bændasamfélaginu.
Profile Image for Binni Erlingsson.
300 reviews3 followers
April 21, 2020
Sterk byrjun á því sem virðist vera mun stærri saga. Þessar bækur voru kallaðar kerlingabækur af misvitrum gagnrýnendum (örugglega karlkyns?) þegar þær komu út en þær eru í raun fullar af djúpu innsæi inn í mannlega hegðun og lýsa staðarháttum um aldamótin 1900 mjög vel. Það er svo stutt síðan í raun að Ísland var svona og því gaman að lesa lýsingarnar. Áhugaverðasti karakterinn er klárlega Þóra sem sveiflast eins og lauf í vindi eftir dittum dalaprinsins og það er nokkuð ljóst að allskonar feministískar pælingar liggja hérna að baki hjá Guðrúnu frá Lundi. Hlakka til að lesa meira.
102 reviews
September 1, 2020
Frábærar bækur. Las þær allar í sumar og skemmti mér vel yfir persónum og leikendum í dalnun. Það er enginn svikinn af lestri bóka Guðrúnar frá Lundi. Hún er snillingur í að skrifa lipur og eðlileg samtöl. Í því kemst enginn íslenskur rithöfundur með tærnar þar sem hún hefur hælana. 🤗
Profile Image for Karitas Mörtudóttir Bjarkadóttir.
8 reviews1 follower
June 24, 2024
Trúi ekki að ég hafi ekki lesið þetta fyrr. Jane Austen meets íslenska sveitalífið og úr verður hinn ljúffengasti kokteill. Tengdi mikið við kaflann þar sem Þóra hugsar ekki um annað en að eignast upphlut. Beint í næstu bók!
Profile Image for Einar Jóhann.
315 reviews12 followers
August 14, 2019
Skínandi bók. Reyndar hélt ég að ég væri 'Dalaprinsinn' en Jón Jakobsson situr einn um þann ágæta titil.
Profile Image for Berglind Steinsdóttir.
68 reviews2 followers
Read
March 7, 2022
Las þær allar árið 2011. Dýrleg saga af Jóni á Nautaflötum og samsveitungum hans. Guðrún kann þá mögnuðu list að sýna í stað þess að segja frá og útskýra í smáatriðum fyrir lesendum.
Profile Image for Sigríður Halldóra Gunnarsdóttir.
52 reviews4 followers
Read
March 28, 2024
Loksins varð úr að ég les Guðrúnu frá Lundi, það sem þetta er yndisleg, ljúf, kímin og sár saga, mæli með. Þetta eru bækur sem maður les aftur og aftur.
Profile Image for Björg Hákonardóttir.
85 reviews3 followers
December 23, 2024
Yndisleg. Ég elska að lesa rólegar og skemmtilegar sögur um íslenskt sveitalíf í gamla daga sem eru ekki fullar af harmi og ógeðfelldum atvikum. Hlakka til að lesa seinni 4 af þessum framhaldssögum.
Displaying 1 - 21 of 21 reviews

Can't find what you're looking for?

Get help and learn more about the design.