Á fáeinum áratugum tók íslenskt samfélag stakkaskiptum og varð eins og önnur evrópsk miðaldasamfélög. Valdabarátta höfðingja náði hámarki á árunum 1220–1264 sem hafa oft verið nefnd Sturlungaöld. Hér eru pólitísk átök þessara ófriðarára greind og sett í nýtt samhengi þar sem áhersla er lögð á hlutdeild fleiri en fáeinna höfðingja. Við sögu koma höfðingjar, húsfreyjur, vígamenn, frillur, fræðimenn, fróðleikskonur og flakkarar.
Auðnaróðal er aðgengilegt yfirlitsrit sem nýtist bæði háskólanemum og almennum lesendum. Íslandssagan í nýju og stundum óvæntu ljósi.
„Einkar vandað fræðirit en skemmtilegt og spennandi um leið.“ — Guðni Th. Jóhannesson
Sverrir Jakobsson lýsir hér sögu Íslands frá lögtöku tíundar til þess er landið gengst Noregskonungi á hönd í gegnum helstu persónur og leikendur. Bókin er skrifuð bæði fyrir almenna lesendur og fræðimenn og er mjög upplýsandi og það má segja að margt nýtt komi hér fram. Sverrir gætir þess að draga fram hlut kvenna þótt erfitt sé vegna karllægra sjónarmiða við skrif heimilda og vegna þess að þær réðu fyrir búinu á meðan karlarnir tókust meir á í pólitískum tilgangi.
Fróðleg bók sem dýpkar verulega skilninginn á Sturlungaöldinni og aðdraganda hennar. Gaman að fylgjast með konunum líka. En það var óheyrilega mikið af nöfnun í gangi og það hefði verið gaman að teikna upp ættir og skyldleika um leið og maður las. Geri það einhvern tíman seinna.
Mjög fróðleg og góð yfirferð yfir þetta tímabil sem maður hafði frekar götótta mynd af en með þessari bók hefur maður fengið betri yfirsýn yfir og skilning á þróun mála á þessum tæpum 200 árum sem fjallað er um og eins betri innsýn í aðdraganda að og ástæður fyrir þeim merkilegu atburðum þrettándu aldar sem maður taldi sig kunna nokkuð góð skil á en sér nú að einhverju leyti í öðru ljósi. Það er svo spurning hvort ekki sé ástæða til að höfundur bókarinnar taki fyrir önnur tímabil Íslandssögunnar og geri þeim svipuð skil - ég myndi gjarnan vilja hafa aðgang að slíkri heildstæðri umfjöllun um þróun valds, stjórnsýslu og fleiri þátta í gegnum aldirnar.