What do you think?

Perurnar í íbúðinni minni
Hann kallar þetta ekki endilega ljóð. Og ekki prósa. Frekar texta.
Kött Grá Pjé gefur út hjá Bjarti bókina Perurnar í íbúðinni minni. En hér er titiltextinn.
PERURNAR Í ÍBÚÐINNI MINNI
Ein af annarri dóu perurnar í íbúðinni. Það gerðist ekki sisvona. Ég tók ákvörðunina um vor. Skömmu fyrir jól logaði enn á leslampanum mínum og á ljósinu yfir helluborðinu á eldavélinni. Leslampinn fór á milli jóla og nýárs. Peran yfir helluborðinu dó um miðjan janúar. Um hríð var algjört myrkur. Köttunum virtist vera nákvæmlega sama. Áfram barst daufur bjarmi af götuljósunum inn um stofugluggann. Þó ekki svo að ég sæi til nokkurs gagns. Mikið var það yndislegt. Fljótlega í kjölfar þess tók aftur að vora. Dag einn vaknaði ég í björtu. Þá stóð ég upp og dró fyrir.

96 pages, Hardcover
Published November 1, 2016
Ratings & Reviews
Friends & Following
Create a free account to discover what your friends think of this book!
Community Reviews
Displaying 1 - 6 of 6 reviews
December 5, 2025
Borðeyri og Hvamstanfi mentioned
June 26, 2017
Margar af þessum örsögum voru frábærar, aðrar gleymdust fljótt. Eins og við er að búast af svona stóru safni af sögum voru þær ekki allar jafn góðar en þetta textasafn Kött Grá Pje er klárlega þess virði að lesa.
September 14, 2018
Margt gott, annað sem situr ekki eins mikið eftir.
March 23, 2021
Skemmtileg bók, full af húmor og skrýtnum sjónarhornum á tilveruna.
March 31, 2021
Fyrsti kossinn
"Við kysstumst fyrst yfir kari af slægðum þorski. Síðar slægði hún mig eins og þorsk tilfinningalega."

This entire review has been hidden because of spoilers.
February 2, 2017
Misgóðar sögur. Margar hverjar mjög góðar. Mæli með.
Displaying 1 - 6 of 6 reviews