Jump to ratings and reviews
Rate this book

Stofuhiti

Rate this book
Stofuhiti er beitt og knýjandi krufning á samtímanum þar sem rýnt er í samfélagsmiðla, sítengingu, hryðjuverk, gagnaleka og margt annað sem hefur gríðarleg áhrif á sjálfsmynd okkar, hvort sem við áttum okkur á því eða ekki. Getur verið að þrátt fyrir upphafningu einstaklingsins sé hann að þurrkast út? Að þrátt fyrir síaukið upplýsingaflæði og gagnsæi stjórnist veröldin af dulmagni? Bergur Ebbi, skáld, pistlahöfundur og uppistandari, skrifar af snerpu og eldmóði um veruleika líðandi stundar – það sem á okkur brennur: Hver erum við og hvert ætlum við?

218 pages, Paperback

First published May 9, 2017

Loading...
Loading...

About the author

Bergur Ebbi

4 books5 followers

Ratings & Reviews

What do you think?
Rate this book

Friends & Following

Create a free account to discover what your friends think of this book!

Community Reviews

5 stars
38 (13%)
4 stars
108 (39%)
3 stars
107 (39%)
2 stars
19 (6%)
1 star
1 (<1%)
Displaying 1 - 22 of 22 reviews
Profile Image for Kristín Hulda.
267 reviews11 followers
October 5, 2021
Mjög góð. Mjög furðulegt að ég hafi ekki verið löngu búin með hana í ljósi ástar minnar á Bergi Ebba, eina íslenska celebrity crushinu mínu. Er good reads kannski of opinn vettvangur til að skrifa það í review? Allavega, bókin var frábær. Las hana hægt og pældi mikið á milli kafla!
Profile Image for Þorsteinn Sürmeli.
9 reviews2 followers
July 8, 2017
Margar áhugaverðar og skemmtilegar – og fyndnar – vangaveltur sem snerta samtímann, fólkið í honum og áhrif tækninnar á hegðun mannsins. Sérstaklega fannst mér áhugaverð hugmyndin um að óttinn um gagnaleka sé alltumlykjandi og að hann hafi áhrif á okkur líkt og atómsprengjan á tímum Kalda stríðsins. Ég kann líka að meta kaflann Hin fullkomna sjálfsmynd þar sem Bergur fjallar um leit okkar að hinni fullkomnu sjálfsmynd – og sjálfu.

Sumar vangavelturnar hefði þó mátt temja betur og kafa mætti dýpra í viðfangsefni hvers kafla. Hver kafli hverfist um einhverja hugmynd en í sumum köflum er samt farið um víðan völl og lesandinn nær ekki nægilega djúpstæðum skilningi á hugmyndinni sem fjallað er um – með þeim hætti að hann geti speglað sjálfan sig í henni og öðlast betri skilning á samtímanum. Ég hefði til að mynda viljað mun dýpri greiningu á fyrrnefndum ótta sem ég held að allir geti tengt við. Það sama á við um umfjöllunina um pólitíska rétthugsun, bilið milli fólks og skoðana þeirra og brúnna sem þarf ekki að reisa þar á milli. Ég fékk það stundum á tilfinningu á að Bergur treystir lesandanum ekki til að melta djúpar pælingar sjálfur, að hann hafi verið að hlífa honum fyrir kjarnanum eða þori hreinlega ekki að orða hann (notar t.d orðalag á borð við „Tökum pásu. Þetta var djúpt“ (122)). En ég hafði þó gaman að bókinni og hún fékk mig til að leiða hugann að ýmsu sem maður ætti að hugsa oftar um en gleymir stundum í hraðanum.

Markaðssetning bókarinnar fær toppeinkunn; lag, trailer, hlaðvarp. Vel gert!
Profile Image for Ragúel Hagalínsson.
3 reviews1 follower
March 15, 2018
Tengi vel við skrif Bergs. Þessi bók er hugarsprengja. Hann túlkar okkar samtíma á flottan hátt.
Profile Image for Helga Rakel.
29 reviews18 followers
October 8, 2024
ég datt alveg út eftir helming og tók hana svo upp í dag til að klára, loksins!
Alveg skemmtileg og góðar pælingar. Passíft hugrekki er þolinmæðin og þess háttar. Fannst samt mikið af þessu ekkert nýtt en maður er vist smá skotin i bergi ebba svo eg fyrirgef og þakka fyrir mig.
Profile Image for Gunnar Berg Smári.
52 reviews1 follower
October 8, 2024
Mikið flipp að lesa bækur án þess að vita neitt um þær, hélt þetta væri skáldssaga eða ævisaga. En það var alls ekki málið, þetta var krufning á samfélaginu… held ég…

Þetta var samt bara mjög fín bók með góðum pælingum skrifað á mjög skemmtilegan hátt. Leiddist aldrei að lesa hana.

Verð að meta hvernig Bergur nær að gera geggjað segway frá einum kafla í annan! Alveg galið vel gert. Elska líka rosalega mikið þegar rithöfundir hafa ljósmyndir í bókunum sínum!

3.5 stjörnur.
Profile Image for Heiður Anna Helgadóttir.
49 reviews11 followers
August 27, 2017
Fín bók og ágæt dægrastytting. Pælingarnar eru hráar og allar í óreiðu, svolítið eins og að lesa óslípaðar hugsanir sem mér finnst óvanalegt. Samt skemmtileg tilbreyting.
Profile Image for Inger Thomsen .
24 reviews2 followers
March 28, 2020
Finnst hún bara allt í lagi, myndi mæla með henni. Dýrka hvernig Bergur Ebbi sér fegurðina í hversdagslegum hlutum eins og stofuhita.
1 review2 followers
June 3, 2026
Bergur er snillingur, skildi ekki allt sem hann var að tala um en hann gerir allt svo áhugavert. Leið eins og ég væri í stanslausum hrærigraut í hausnum á honum.
Profile Image for Una Ragnars.
58 reviews1 follower
Read
July 24, 2024
gleymdi að goodreads væri til en her er eg, ætla ekki að
ljuga atti svo litið eftir en þurfti að
skila a bokasafnið þannig!
Profile Image for Arni Snaevarr.
55 reviews1 follower
February 9, 2020
Ég hlustaði á hljóðbók Bergs Ebba Stofuhita eftir að hafa hrifist mjög af Skjáskoti. Það ánægjulega eru framfarirnar sem eru á milli þessara tveggja bóka. Efnið er næstum því það sama og mælskan er á sínum stað í báðum bókum. En hugmyndirnar eru ekki eins yddaðar, flutningurinn hálf kæruleysislegur. Bergur Ebbi er bæði hnyttinn og vel hugsandi. Sumt er himinhátt yfir markið og lætur sennilega mælskuna taka völdin sérstaklega þegar hann þakkar fæðingu siðmenningar fegurðarleit mannsins. En þetta skiptir engu máli. Það sem skiptir máli er að hann hreyfir við manni og fær lesandann til að horfa á samtíma sinn með nýjum og ferskum augum. Þessi ummæli eiga við báðar bækur þannig að ég birt þær orðréttar á tveimur stöðum :)
Profile Image for Guttormur.
12 reviews
December 27, 2019
Margar áhugaverðar pælingar og oft þrælfyndin, sérstaklega fyrri hluti bókarinnar. Þó þótti mér á tíðum engin skýr framvinda í köflunum og þegar upp er staðið finnst mér hún ekki skilja mikið eftir sig. Eftir að hafa hlustað á Berg tjá sig um þessi málefni í hlaðvarpi, þar sem mér finnst hann hafa komið þessu frá sér á skiljanlegri hátt, grunar mig að þessi bók sé einskonar fyrsta tilraun til þess að koma þessum pælingum frá sér. Hellings potential í þessu og hlakka til að lesa Skjáskot.
Profile Image for Karl Hallbjörnsson.
677 reviews74 followers
May 11, 2017
Ágætt verk, pælingar á þvers og kruss — saknaði nánari skipulagningar og útpælingar, en eins og Bergur kemst að orði sjálfur (ekki laust við hegelskan hugsunarhátt, heldur) þá eru formið og innihaldið oftar en ekki svo óaðskiljanlegir þættir að kallaði maður eftir breytingu á öðru þeirra hefði það djúpstæð áhrif á hinn þáttinn. Hraðlesin og áhugaverð lítil bók.
137 reviews
November 2, 2017
Þetta voru skemmtilegar hugleiðingar og höfundurinn kom oft með nýjan vinkil á hversdagsleikann. Ég skildi nú ekki allt sem hann var að tala um, enda sumt frekar heimspekilegt. Ég hafði samt gaman af lestrinum. Kaflarnir voru líka í þægilegri lengt til að lesa einn í einu áður en ég fór að sofa á kvöldin.
Profile Image for hjortur.
2 reviews
January 23, 2018
Bergur Ebbi í miklum ham með áhugaverða, oftast góða, sjaldan langsótta nálgun við nútímann. Ekkert verið að snobba fyrir Kringlunni eða neitt kjaftæði. Það sem ég hef ekki séð í umfjöllun um þessa bók er að hann er einn besti stílisti skrifandi á íslensku. Geggjað stöff.
Profile Image for Björn Brynjúlfur.
84 reviews
July 2, 2018
Skemmtilegar pælingar, sumar mjög djúpar, gaman að lesa bók eins og þessa á Íslensku. En vantar skýrari strúktúr sem veldur því að bókin skilur ekki nógu mikið eftir sig - pælingarnar eru ekki nógu fullmótaðar.
Profile Image for Heiðdís Lára.
15 reviews3 followers
January 21, 2018
Góð til að stytta tímann þó svo að bókin fer í smá rugl. Góðar pælingar hjá Berg. Myndi halda að bókin sé betri ef maður les kafla í senn og gefi sér tíma til að pæla í pælingarnar.
3 reviews21 followers
March 9, 2018
Kom mér virkilega á óvart. Fullt af áhugaverðum pælingum um sjálfsmynd og samskiptamiðla. Nær að vera fyndinn og alvarleg á sama tíma. Lakar betra skipulag. 7/10
Profile Image for Guðrún Úlfarsdóttir.
179 reviews6 followers
Read
November 15, 2023
Menn voru bara eitthvað að pæla og svo skrifuðu menn það niður og svo gáfu menn það út á prenti 👍
Displaying 1 - 22 of 22 reviews