What do you think?

Formaður húsfélagsins
Maður flytur í blokkaríbúð systur sinnar á meðan hann kemur undir sig fótunum. Þetta átti að vera tímabundin ráðstöfun, en fyrr en varir er húsfélagið lent á hans herðum.
Formaður húsfélagsins fjallar um samlíf ókunnugra, nauðsynlegt viðhald fasteigna og margslungið tilfinningalíf íbúa fjölbýlishúsa.
„Dag einn birtist auglýsing sem vekur athygli mína. Í fyrirsögn er lesandinn spurður hvort hann langi til að verða kvikmyndastjarna. Mig langar ekki til þess en held samt áfram að lesa. Ég kemst að því að það er ekki verið að leita að stjörnum – þær hafa nú þegar verið ráðnar – heldur vantar svokallaða „bakgrunnsleikara“. Ég geri ráð fyrir að með því sé átt við leikara sem heldur sig í bakgrunni. Ég tel mig geta ráðið við það.“

205 pages, Hardcover
First published January 1, 2017
Ratings & Reviews
Friends & Following
Create a free account to discover what your friends think of this book!
Community Reviews
Displaying 1 - 16 of 16 reviews
December 8, 2017
Ég naut þess í botn að lesa þessa bók. Aðalpersónan er grátbrosleg í daufleika sínum og heilmikil ábyrgð hvílir á lesandanum því hún tekur eiginlega ekki afstöðu til neins í kringum sig. Stíllinn kallast algjörlega á við þetta afstöðuleysi aðalpersónunnar, sem getur aldrei nefnt staði á nafn og varla fólk, en talar þess í stað í kringum nöfnin. Hún virðist einhvern veginn lenda óvart í öllum hlutverkum í lífi sínu, sem kærasti, faðir og formaður húsfélagsins. Það er lúmskur húmor í þessari bók og hún er full af hversdagslegum en skemmtilegum aðstæðum og pælingum.
July 5, 2020
Mjög sáttur. Hér gerist ekki mikið en textinn er skemmtilegur og sum hversdagsleg atriðin og lýsingarnar óborganlegar. Skellti upp úr oftar en einu sinni.
February 19, 2026
Nú er ég ekki nægilega að mér í Íslenskri bókmenntasögu, þannig að ég er ekki með tímalínuna á hreinu, en til að sporna gegn því að þessi rýni hrynji í sundur að sökum fáfræði minnar ætla ég að halda í báða enda og segja að annaðhvort er þessi bók menningarlega forspá um þá bylgju sem átti sér stað í Íslenskum bókmenntum fyrir nokkrum árum þar sem höfundar gátu ekki, eða vildu einfaldlega ekki, skrifa um neitt annað en lágstemmdan hversdagsleikann þar sem ekkert gerist, eða hún er gagnrýni á þá bylgju. Sama hvoru megin hún stendur á þessari tímalínu er þessi bók allavega besta útfærslan á þessu þema sem ég hef lesið, en þá er spurningin hvort að þemað sé yfir nægilega áhugavert til að skrifa svona margar bækur um það? Lítið stendur upp úr eftir lesturinn, en það virðist einmitt hafa verið markmiðið.
Það sem stendur hins vegar smá upp úr og er frekar sérkennilegt er að öll þrjú blörbin sem eru á bókinni eru úr sama Kiljuþættinum, í raun sömu tveimur mínútunum úr Kiljuþætti, og það sem meira er að þá eru þau öll að segja nánast það sama. Sem Vennmynd væru blörbin svona: AB: Fyndin, BC: Skemmtileg og CA: Vel skrifuð.
Vonandi veitir þessi blörbrýni einhverja innsýn inn í bókina!

January 26, 2018
Þetta er svona saga sem er eins og ég vil hafa lífið, vel skrifað en lítið gerist
October 28, 2019
Einhver launfyndni á sérhverri blaðsíðu og mjóg húmorískt afstöðuleysi höfuðpersónunnar gerir þetta að frábærri bók.
April 11, 2018
Mjög skondnar lýsingar úr hugarheimi aðalpersónu sem er klárlega einhversstaðar á rófinu, eins og sagt er. Vantar samt meiri atburðarás til að halda manni við efnið.
December 27, 2018
Atvinnulaus auðnuleysingi og rola reynir að aftengja orðið aumingi. Fjölskyldumeðlimir reyna að aftengja skömmina með því að hlægja að drukkinni móður sem leitar að gleraugum undir sófa. Í kvikmynd tekst aðdáunarvel að láta venjulegan mann líta út eins og venjulegan mann. Lesandi reynir að átta sig á því hvort óspennandi hversdagslíf sér ekki markmið allra, ekki síst þeirra sem fóru á mis við það í upphafi lífshlaupsins.
Hversdagsleg frásögn af hversdagslegu lífi sem þarf að gera sér hugmyndir um af því sem er sýnt en ekki sagt.
Saga sem verðskuldaði meiri vangaveltur um persónusköpun og íroniu en hér er gert en hefur örugglega fengið þá umfjöllun á öðrum vetvangi.

February 4, 2018
Algerlega frábær bók! Höfundi tekst af einstöku næmi að skrifa persónulýsingar inní textann án þess að nota ofgnótt lýsingarorða. Og lýsingar á staðháttum án þess að nefna þá með nafni heldur leyfa lesandanum að ráfa um í eigin huga að leita að samsvörun er hrein snilld!
May 13, 2018
Skondin saga sem lýsir auðnuleysingja sem flytur inn í fjölbýlishús. Hann tekur því sem höndum ber og þvælist brátt í átök milli íbúa um viðhald og umgengni en vill umfram allt gera sem flestum til hæfis. Hafði gaman af að lesa hana.
August 13, 2025
Hafði mjög gaman af þessari bók og narratívi. Mátulega lítið sem gerist en fyndin frásögn. Mætti vera meiri stígandi en myndi vel lesa meir eftir höfundinn. Uppáhalds augnablik: kaupa (ekki) lakkrís og afþakka drauma samtöl pent.
January 7, 2018
Skemtileg saga í frábærum frásagnarstíl.
November 26, 2020
Skemmtilegur stíll og frásögnin fær mann til að brosa. Ég var samt hrifnari af Takk fyrir að láta mig vita og Club Romantica.
January 26, 2021
Grilluð. Ekki mjög viðburðarík en samt nokkuð góð, daufur hversdagsleiki aðalpersónunnar fléttast í húmor og fyndnar aðstæður. I like
September 9, 2021
3,5. Fyndin saga og ágætlega lesin af höfundi.
November 1, 2025
Ætli ég sé ekki í markhóp fyrir svona bók, einhver sem hefur reynslu af ýmsum stöðum og málefnum húsfélaga. Þónokkur atriði sem ég brosti yfir, ágætis afþreying.
This entire review has been hidden because of spoilers.
July 12, 2018
Sérkennilegur karakter sem veit ekkert um hvað er að ske í kringum hann, aulast einhvernveginn áfram og allt virðist samt rúlla áfram eins og fyrir tilviljun. Skemmtileg lesning mæli með henni.
Displaying 1 - 16 of 16 reviews