Í Reykjavík er unglingsstúlka að reyna að átta sig á framtíðinni. Í heiminum geisar kalt stríð og heimsendir virðist jafn raunverulegur og ný peysa úr Ping Pong við Laugaveg. Til að verða gjaldgengur í veröldinni þarf að vera annaðhvort eða, velja á milli þess að krókna eða stikna. En það er ekki það sem hún hefur í huga ... Í Smartís segir Gerður Kristný sögu sem gerist á níunda áratug liðinnar aldar. Meitlaður stíll, húmor og frásagnargleði njóta sín til fullnustu í texta sem miðlar horfnum tíma og sterkum tilfinningum.
Gerður Kristný graduated in French and comparative literature from the University of Iceland in 1992. Her B.A. dissertation was on Baudelaire's Les fleurs du mal. After a course in media studies at the University of Iceland from 1992-1993 she trained at Danish Radio TV. She was editor of the magazine Mannlíf from 1998 - 2004, but is now a full time writer.
Awards for her work include 1st prize in the National Broadcasting Service short story competition 1986, 1st prize in a TV culture programme poetry competition 1992, the Children's Choice Book Prize in 2003 for her book Marta Smarta, the Halldór Laxness Literary Award in 2004, for her novel Bátur með segli og allt (A Boat With a Sail and All) and the Icelandic Journalist's Award for Myndin af pabba - Saga Thelmu (A Picture of Dad - Thelma's Story) in 2005. Her poetry book, Höggstaður, was nominated for The Icelandic Literary Award in 2007. Her poetry and short stories have been included in school textbooks at the elementary- and secondary level, as well as in anthologies published in Iceland and overseas.
Gerður Kristný has published poetry books, short stories, novels and a book for children, as well as a book about the Westman Islands Festival in 2002.
Það er alltaf gaman þegar maður bókstaflega finnst maður ganga í fótsporum aðalpersónu bókar. Ég upplifði það við lesturinn á Smartís. Án þess að verja löngum málsgreinum í lýsingar og staðhætti, nær Gerður að flytja mann inn í heim aðalsögupersónu sinnar þar sem maður upplifir tilfinningar hennar og hvernig hún tekur þessi fyrstu skref í því sem mætti kalla fullorðinsheimi. Þetta var alveg frábærlega áreynslulaust þrátt fyrir aðalpersónan sannarlega byggi yfir hinu tilfinningaríka sálarlífi sem flestir búa yfir á þessum aldri.
Ég veit að ég virðist mjög gjafmild á stjörnur þessa dagana en þessi bók á allar þessar 4 stjörnur skilið. Ótrúlega falleg kápa sem sómir sér vel á hvaða stofuborði sem er auk þess að vera bara virkilega góð bók.
Yndislegt endurlit. Skammtadi mér hana thví mer fannst svo gaman ad dvelja i nostalgiunni sem Gerdur fangar af stakri snilld. Bragd, lykt, stemmning, upplifun, búdir, tónlist og hverfi, allt kemur thetta leikandi létt tilbaka.
Leikandi létt og vel skrifuð saga, eins og við var að búast frá Gerði Kristnýju. Það var voðalega gaman að lesa þessa bók af því að ég samsamaði mig alveg við hana, ég þekkti allar búðirnar sem stelpan fór í og allt sem hún var að kaupa. En hún risti kannski ekkert voðalega djúpt.
Smartís er eitt af þeim fáu góðu ungmenna bókum Íslands. Ég hef verið að leita af bók eins og þessari vel skrifuð og skrautleg bók sem inniheldur hvering samræður og vinasambönd ulinga getur verið og uppáþrengan að vera fullkominn og passa inn en það sem þessi bók hefur kennt mér og öðrum er að maður ætti alltaf að vera maður sjálfur og standa með sjálfum sér!
Skemmtileg saga sem fékk mig til að hugsa til baka til Háleitishverfis níunda áratugarins. Sagan er einföld á yfirborðinu en flækjur unglingsáranna fléttast á milli línanna.