Býr Íslendingur hér? er ein áhrifamesta ævisaga síðustu áratuga hér á landi. Hún geymir sögu Leifs Muller, kaupmannssonar úr Reykjavík sem fæddur var 1920 og hélt út í heim kornungur, nokkru áður en seinni heimsstyrjöldin braust út. Í umróti stríðsins var hann svikinn í hendur Gestapo í Noregi, fangelsaður og síðar sendur til Sachsenhausen-fangabúðanna skammt frá Berlín.Leifur þraukaði til stríðsloka í þessum illræmdu útrýmingarbúðum nasista. Gegndarlaus þrældómur, grimmd, niðurlæging og þjáningar urðu hlutskipti hans þar, og við hryllilegar aðstæður dró hann fram lífið, komst til þroska – og lifði af. Eftir stríð höfðu fáir heima á Íslandi nokkurn skilning á því sem hann hafði gengið í gegnum en hann var illa farinn á líkama og sál eftir vítisvistina; sárin greru aldrei.Leifur Muller lést sumarið 1988, í þann mund sem Garðar Sverrisson lauk við að rita söguna um fangavist hans fjörutíu árum fyrr, látlausan aðdraganda hennar og áhrifarík eftirmál. Bókin kom út um haustið og vakti gríðarlega athygli enda er upprifjun Leifs einlæg og sláandi, skrifuð af nærfærni og virðingu, og snertir djúpt hvern þann sem les.
Virkilega vel skrifaðar endurminningar Leifs Mullers. Einstök saga Íslendings í fangabúðum nasista. Hef lesið mikið um WW2 en þessi hitti mig alveg í hjartastað vegna tengingarnar við Ísland. Þegar ég las í gegnum hana leið mér eins og ég gæti verið að lesa sögu um afa minn. Mæli með!
A sobering account of a man that went through hell, quite literally. A powerful reminder of what we have to do and what we should aim for, as people and as a society.
Besta bók sem ég hef lesið. Sviptir hulunni af þeim hremmingum sem fangar helfararinnar þurftu að undirgangast daglega. Sárnar það innilega að hann hafi látist svona ungur því þessa sögu ber að segja hverjum þeim sem hlusta geta. Megi hann hvíla í friði með hreina samvisku.