What do you think?

Tvennir tímar
Ratings & Reviews
Friends & Following
Create a free account to discover what your friends think of this book!
Community Reviews
Displaying 1 - 6 of 6 reviews
April 14, 2019
Mjög fræðandi og góð heimild um slæm kjör alþýðufólks á nítjándu öld.
June 21, 2023
Ég hlustaði á þessa bók á Storytel í frábærum lestri Helgu E. Jónsdóttur. Ég gef þessari bók fimm stjörnur fyrir fyrri hluta bókarinnar sem fer yfir líf Hólmfríðar frá barndóm fram á fullorðinsár. Hólmfríður er greinilega stálminnug og bókin því frábær heimild um líf alþýðufólks á ofanverðri nítjándu öld, ekki síst barna og kvenna. Og stórmerkilegt að heyra lýsingar af matarhefð Íslendinga á þessum tíma og hvað fólk borðaði þegar lítill matur var til.
March 13, 2018
Bókin er ekki beint skemmtileg eða sérlega vel skrifuð en hinsvegar er hún mjög fræðandi. Þjóðháttalýsingar sem gefa mjög góða innsýn í líf fólks á Íslandi undir lok 19. aldar og byrjun 20. aldar. Mjög nákvæmar lýsingar á vinnulagi, fatnaði og mat. Drakk þetta í mig!
March 15, 2023
Áhugaverð bók og innsýn í erfiðan uppvöxt stúlku á tímum vistarbandsins á Íslandi, sem fæddist utan hjónabands og því ekki á færi móður hennar, fátækrar vinnukonu.
Það rætist verulega úr lífi Hólmfríðar þegar hún kemst á fullorðinsár, kemst í betri vist, kaupir sér lausamennskubréf og gengur í hjúskap.
Upptalningar á nöfnum íbúa í einni sveitinni gefa lîtið en lýsingar á mataræði og atlæti áhugaverðar.
Mæli með lestri þó að innihald sé mis áhugavert.
Hólmfríður Margrét Björnsdóttir (1870-1948)

September 2, 2022
Mögnuð saga.... svo ekki sé meira sagt 📖👍
June 20, 2023
Þessi bók er ekki góð sem ævisaga en sem innsýn í horfna starfshætti eða aðbúnað fátækra er hún mjög góð. Minnir að sumu á símaskrána, mjög margt fólk kemur við sögu en hefur frá litlu að segja.
Displaying 1 - 6 of 6 reviews