Á frosthörðum vetrardegi hringir kornung stúlka í Neyðarlínuna og tilkynnir að móðir hennar sé látin. Þegar lögreglan kemur á staðinn er það ekkert að finna nema blóðug ummerki. Rannsóknarlögreglukonan Hilma og félagar hennar mega engan tíma missa í leit sinni að mæðgunum - leit sem dregur þau inn á óvæntar slóðir og inn í myrkustu kima mannskepnunnar.
Frábær höfundur og ég vona að hann haldi áfram að skrifa! Ég las Hilmu, fyrri bók Óskars (og fyrstu skáldsögu, að mér skilst), nánast í einum rykk og keypti þessa á flugvellinum á leið í frí til útlanda - ætlaði að njóta þess að lesa hana í fríinu en kláraði á núlleinni! Hilma sjálf er mjög áhugaverður karakter og ég vona að við fáum að fylgjast lengur með henni.
Blóðengill er ágætis bók. Hraðinn er nokkuð þótt vendingar séu kannski ekki margar. Mér finnst Oddgeir frábær karakter og vona að hann fái aðeins meira pláss í næstu bókum. Hilma er nagli en hún virðist einhvern veginn ekki læra af reynslunni. Hvers vegna treystir hún samstarfsfólki sínu ekki aðeins betur? Hvers vegna anar hún alltaf út í óvissuna alein án þess að láta nokkurn vita hvert hún ætlar? Hún ætti að vera skynsamari en þetta. Það er bara lukka að hún er ekki löngu dauð.
Spännande, en riktig bladvändare. Man bör ha läst del 1 först för att uppskatta den till fullo. Intressanta personligheter, även om poliserna inte riktigt uppför sig som poliser i verkliga livet (men så är det ju i väldigt många deckare).
3 1/2⭐️. Góð bók. Spennandi en fannst fyrri betri. Fannst samt fyrri helmingur bókarinnar mjög spennandi og lét hana ekki í friði þá. Þegar leið á fór mér aðeins að leiðast. Vil samt halda áfram að hlusta á Hilmu.