Þetta er saga um pilt og stúlku samtímans, ást þeirra, leiki og hvunndagshamingju í sólríku evrópsku þorpi. En skammt undan lúrir skugginn, kannski í leynum hugans eða djúpi draumsins og kannski á hann aðrar ættir.
Sumir munu kalla þetta ástarsögu, aðrir draugasögu, enn aðrir kenna hana við agaðan súrrealisma. Þetta er ljúf bók, fyndin og furðuleg, ærslafull og sorgleg.
Sjón (Sigurjón B. Sigurðsson) was born in Reykjavik on the 27th of August, 1962. He started his writing career early, publishing his first book of poetry, Sýnir (Visions), in 1978. Sjón was a founding member of the surrealist group, Medúsa, and soon became significant in Reykjavik's cultural landscape.
Since then, his prolific writing drove him to pen song lyrics, scripts for movies and of course novels such as The Blue Fox.
Ekki alveg minn tebolli. Bókin er að sjálfsögðu ákaflega vel skrifuð eins og Sjón einum er lagið, hann beitir málinu fallega og fyrir það las ég hana til enda. En fyrir fólk sem er að leita eftir línulegri frásögn þá myndi ég beina þeim annað. Ég ímynda mér að þessi bók sé mjög vinsæl hjá þeim sem hafa gaman af og lesa ljóð að staðaldri því hún minnir í raun meir á ljóðabók en skáldsögu, amk í mínum augum.
Engill, pípuhattur og jarðarber var ein af aðeins nokkrum Sjónsbókum sem ég átti eftir að lesa og kláraði ég hana á tveimur kvöldstundum. Þetta er önnur skáldsaga Sjóns og sver sig í ætt við hans fyrstu, Stálnótt, að því leyti að hér er framúrstefnan og póstmódernisminn alltumlykjandi þótt sagan sé örlítið línulegri en í Stálnótt. Bókinni hefur verið lýst sem samblöndu af ástar- og hryllingssögu en ég er ekki alveg sammála síðarnefndu skilgreiningunni því hryllingurinn er mjög lágstemmdur og undirliggjandi. Ef til vill væri betra að kalla hana draumkennda fantasíu. Bókin er langt því frá besta verk Sjóns en engu að síður mjög áhugaverð og vel þess virði að lesa fyrir aðdáendur hans og annarra framúrstefnubókmennta.
ætlaði að gefa 4 stjörnur en skrifa athugasemd um það að væri,hugsanlega, heimski hausinn minn sem skildi bara ekki hvað væri að gerast. En, fyrst ég sjón að aðrir eru að gefa 3 stjörnur þá gef ég bara líka 3 stjörnur