What do you think?

Íslenska kraftaverkið
"Íslenska landsliðið vakti heimsathygli með frammistöðu sinni á EM í Frakklandi árið 2016. Og ekki minnkaði undrunin þegar liðið endaði á toppnum í ógnarsterkum riðli í forkeppni HM í Rússlandi. Hvernig var þetta hægt? Með leikmenn sem flestir voru í lítt þekktum liðum og þjálfarinn tannlæknir í hlutastarfi!
Í þessari áhugaverðu og skemmtilegu bók gefst einstakt tækifæri til að skyggnast baksviðs hjá íslenska landsliðinu, og kynnast „strákunum okkar“ í sigrum og ósigrum, gleði þeirra og sorgum, hjátrú og hefðum, fá innsýn í líf atvinnumannsins – og aðferðir þjálfaranna Lars Lagerbäck og Heimis Hallgrímssonar. Auk þess er hér að finna ljósmyndir að tjaldabaki sem hvergi hafa birst áður.
Þorgrímur Þráinsson á að baki langan knattspyrnuferil en hefur líka verið starfsmaður landsliðsins í meira en áratug. Hann gjörþekkir strákana í liðinu, á trúnað þeirra og segir söguna á bak við ævintýrið af innsæi, húmor og leiftrandi sagnagleði."

224 pages, Paperback
Published May 24, 2018
About the author
Þorgrímur Þráinsson
31 books13 followersÞorgrímur Þráinsson er fæddur í Reykjavík 8. janúar 1959. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1980 og stundaði nám í frönsku við Sorbonne háskóla í París 1983-1984. Hann var blaðamaður hjá Fróða frá 1985 og ritstjóri Íþróttablaðsins og ritstjórnarfulltrúi barnablaðsins ABC frá 1989. Í lok árs 1996 var hann ráðinn framkvæmdastjóri Tóbaksvarnanefndar. Þorgrímur lék með meistaraflokki Vals í knattspyrnu frá 1979 til 1990 og gegndi fyrirliðastöðunni síðustu fimm tímabilin. Áður lék hann með Víkingi frá Ólafsvík. Hann varð þrisvar sinnum Íslandsmeistari á knattspyrnuferlinum með Val og tvisvar sinnum bikarmeistari. Þorgrímur lék alls um 180 leiki í efstu deild og 17 landsleiki fyrir Íslands hönd. Þá varð hann bikarmeistari í frjálsíþróttum með FH árið 1988 en hann keppti í spjótkasti.
Þorgrímur hefur skrifað fjölda bóka fyrir börn og unglinga og var fyrsta bók hans, Með fiðring í tánum (1989), metsölubók á sínum tíma. Hann hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin 1997 fyrir bókina Margt býr í myrkrinu og aftur árið 2010 fyrir bókina Ertu Guð, afi?. Fyrsta skáldsaga hans fyrir fullorðna, Allt hold er hey, kom út 2004.
Þorgrímur Þráinsson býr í Reykjavík

Ratings & Reviews
Friends & Following
Create a free account to discover what your friends think of this book!
Community Reviews
Displaying 1 - 1 of 1 review
June 26, 2018
Virkar svolítið eins og bloggfærslur frá Þorgrími. Sumar sögurnar áhugaverðar aðrar leiðinlegar og sumar útúr kú. Heilt yfir allt í lagi í ljósi aðstæðna en ég hefði aldrei lesið hana ef ekki værir fyrir HM.
Displaying 1 - 1 of 1 review