Pelastikk er ein vinsælasta skáldsaga Guðlaugs Arasonar og löngu tímabært að hún fáist í handhægri kiljuútgáfu. Bókin kom fyrstu út árið 1980 og vakti strax mikla athylgi sem óvenjuleg sjómennskusaga. Hún lýsir reynslu drengs sem fær að fara einn túr á síldarbát og fær svo leyfi til að vera alla vertíðina. Sagt er frá hugarheimi drengsins sem alinn er upp í dæmigerðu sjávarplássi og fær draum sinn um að verða fiskimaður uppfylltan. Frásögnin bregður um leið hlýlegri birtu á síldarár sjötta áratugsins við Norðurland.
Mikill sjarmi yfir þessari sögu. Strákur sem elst upp á sjávarplássi á sér þann draum heitastann að komast á síld. Tekst það með harðfylgi og við kynnumst sjómannslífinu og ekki síst talsmátanum í gegnum upplifun hans. Þegar það fiskar og allir eru glaðir og hressir auk þess þegar gæftaleysi er og allir eru orðnir hundfúlir og pirraðir á biðinni eftir silfrinu. Skemmtilega skrifuð.