Með þessari bók kemur skáldið með ferskan og frjóan andblæ inn á ljóðasviðið. Ort er um hinar ýmsu vistarverur innra með manneskjunni sem og úti í hinum stóra heimi og dregnar eru upp myndir sem eru í senn margræðar og skemmtilega óvæntar. Höfundur hefur áður sent frá sér skáldsögu og fræðirit en hér er á ferð önnur ljóðabók hans og fyrir hana hlaut hann Ljóðaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2018.
Haukur Ingvarsson (f. 1979) er að jöfnum hlutum íkonaklast og hefðarsinni, náttúruskáld og borgar-, alvöruþrunginn menntamaður og glottandi hirðfífl. Hann lauk meistaraprófi í íslenskum bókmenntum árið 2005 og hefur síðan fengist við ritstörf og dagskrárgerð í útvarpi. Fyrsta ljóðabók Hauks, Niðurfall og þættir af hinum dularfulla Manga, kom út 2005 og í kjölfarið komu fræðibókin Andlitsdrættir samtíðarinnar: Síðustu skáldsögur Halldórs Laxness (2009) og skáldsagan Nóvember 1976 (2011). Hann leggur stund á doktorsnám í íslenskum bókmenntum og skrifar um viðtökur Williams Faulkner á Íslandi. Haukur er ekki bara einstakt skáld í sinni eigin kynslóð og meðal þeirra sem liðnar eru undir lok, heldur ekki síður þeirra sem enn eru að hleypa heimdraganum, ófæddra og ófyrirséðra.
Haukur Ingvarsson (b.1979) is a writer and editor of journal Skirnir. His first book of poetry, Downfall and Episodes of the Mysterious Mangi (Niðurfall – og þættir af hinum dularfulla Manga), was published in 2004, followed by a book on the late novels of Icelandic Nobel laureate Halldor Laxness (2009) and the historical novel November 1976 (2011).
For his book of poetry, Ecostentialism (Vistarverur, 2018), Ingvarsson won the prestigious Tomas Gudmundsson Literary Prize. His latest book of poetry is called Men Who Love Men (Menn sem elska menn, 2021).
Ingvarsson defended his PhD thesis on the reception of American novelist William Faulkner in Iceland in 2020. The thesis will be published by The Icelandic Historical Society in 2021.
ótrúlega flott ljóðabók um loftslagsbreytingarnar. mér finnst spennandi hvernig hann notar hýbýli, líkamann og jörðina, allt í sama skilningi, sem lánsheimili eða þannig. hvetur lesendur til að muna að einhver gæti þurft að búa þar á eftir þér.