Fyrir áratug hrundi heilsa sjónvarpsmannsins Sölva Tryggvasonar – bæði líkamlega og andlega. Eftir þrautagöngu milli lækna og annarra sérfræðinga, endalausar rannsóknir og lyfjameðferðir án þess að hann fengi bót meina sinna ákvað hann að taka málin í eigin hendur.
Síðan hefur Sölvi fetað allar mögulegar slóðir í leit að betri heilsu og auknum lífsgæðum. Á þeirri vegferð hefur hann gert nær endalausar tilraunir á sjálfum sér viðvíkjandi mataræði og hreyfingu, föstur, bætiefni, kuldaböð, hugleiðslu, öndunaræfingar, tengingu við náttúru og ótalmargt annað sem snýr að heilsu. Bókin fjallar um leið Sölva til heilsu á ný, þær fjölbreytilegu tilraunir sem hann gerði á eigin skinni og niðurstöðurnar sem hann komst að.
Þetta er persónuleg frásögn þar sem Sölvi leggur sjálfan sig á borðið og fjallar af fullkominni hreinskilni um líf sitt og leiðina til heilbrigðis. Um leið er bókin stútfull af praktískum upplýsingum og ráðum. Lesendur geta speglað sig í því sem Sölvi hefur reynt og aflað sér þekkingar á, mátað sig við það og fundið svo sína eigin leið í átt að betra og heilbrigðara lífi.
Þessi yfirgripsmikla bók á erindi við alla, jafnt þá sem glíma við einkenni lífsstílssjúkdóma og vilja snúa við blaðinu og hina sem ástunda heilbrigt líferni.
Höfundurinn Sölvi Tryggvason hefur greinilega prófað ýmislegt á leið sinni til bata eftir hrun. Þetta er áhugaverð bók, hann bendir á marga hluti og aðferðir sem hægt er að nóta til að bæta sig og þó ég sé ekki alveg viss um allt sem hann bendir á, þá veit ég að sumt af þessu virkar á þann hátt sem hann lýsir því. Stundum finnst mér hann hefði mátt vísa betur í heimildir, hvaðan hann hefur þær rannsóknir og annað sem hann byggir fullyrðingar sínar á. En fyrir utan það þá var þetta virkilega áhugaverður lestur.
Skemmtileg og persónuleg frásögn Sölva skilar sér vel í þessari betrunarbók um hvernig megi stýra sér í gegnum nútíma líf án þess að kulna eða missa tök á líkamlegri og andlegri heilsu. Það skiptir litlu máli hvort maður ákveði að nýta sér hverja einustu aðferð sem hann notar á sjálfan sig eða ekki, aðalmálið er sú nálgun að taka sjálfur á eigin málum og án vettlinga. Ég mæli reyndar eindregið með köldu sturtunum.
Mjög skemmtileg lesning sem ég tengdi mikið við, athyglisbrestur og magavandamál streita og mikil ást á Japan og bardagaíþróttum og svo framveigis. Það vantar fleirri einstaklinga sem tala fyrir lífstílsbreytingum sem eina raunhæfa og varanlega lausnin við heilsubresti. Ég hefði reyndar viljað sjá Sölva nota en frekar allan sálfræðigrunn sinn úr Háskólanum enda er bókin að leggja mikla áherslu á samspil líkama og huga. En alla vega góð bók sem ætti að koma flestum úr sófanum og íhuga hvernig þeir eru og ættu að vera að skipuleggja tíman og lífið.
Full of healthy lifestyle advice I will look into further and try. The book is concise and very well written. It doesn't go deep into each category of advice but instead gives a good place to start. I would have liked a bit more detail what he does specifically. For example in the chapter on meditation he only really suggests a daily 10-15m meditation but I'm pretty sure he personally goes way beyond that. But overall I think the book makes the right tradeoffs, there is always a possibility for a second book for more advanced stuff. I will probably be reading the book again and would recommend the book to Icelanders.
Góð samantekt á helstu þáttum heilsu sem hver og einn getur haft áhrif á. Blandar vel saman rannsóknarniðurstöðum og áhrifum á "sample of one" en þó með þeim boðskap að mikilvægast er að prófa á sjálfum sér, sjá hvað virkar og hvað ekki, aðlaga eða prófa annað. Það er ekkert rangt eða rétt, bara lærdómur og aðlögunarhæfni. Hlakka til að prófa hægt og rólega nokkra hluti úr bókinni!
Það var erfitt að gefa þessari bók einkunn því þó hún sé mjög góð þá græðir maður ekkert á því að lesa hana ef maður hefur hlustað á podcastið hans Sölva. Þetta er ekkert nýtt og hann hefur sagt þetta allt svo oft áður. En vissulega kom bókin á undan podcastinu, þó ég hafi lesið hana seinna.
Mörg góð ráð hérna. Nógu mörg til að flestir finni eitthvað sem þeir vissu ekki af. Fyrir mig voru það þakklætis æfingarnar sem komu mest á óvart og hafa borið árangur.