Hera er full tilhlökkunar að flytja í kjallaraíbúðina sem hún var að kaupa í Þingholtunum. Skömmu eftir flutningana finnur hún fyrir óþægilegri nærveru í íbúðinni og upplifir undarlega atburði. Á hún að treysta sjálfri sér eða er þetta allt saman hennar eigin hugarburður?
Íris Ösp Ingjaldsdóttir er eftirtektarverður nýr höfundur á íslenskum spennusagnavettvangi. Röskun er fyrsta bók hennar.
Hafði ekki mikla trú á bókinni áður en ég byrjaði en hún kom á óvart og hélt manni spenntum allan tímann, ég átti erfitt með skiptingarnar á milli söguþráða en það vandist þegar leið á bókina.
Frábær bók! Átti mig alla þangað til í endann. Eg keypti allt í þessari bók nema endirinn en gott plott samt i síðasta/næst síðasta kafla. Ég fékk sjokk. Frábær rithöfundur! Mikið svakalega er eg spennt að lesa Byl eftir hana!!!!
Ég bjóst ekki við að fíla þessa bók svona mikið, ég datt svo rosa inn í hana samt frekar fljótt. Ég féll alveg fyrir sálfræðinga brellunni í rauninni. Ég hugsaði samt strax miðað við hans viðbrögð að hann vissi meira um málið og svo var hann auðvitað sálfræðingur þeirra líka. Það er samt ekki oft þar sem ég leyfi mér að hugsa heyrðu það er kannski eitthvað yfirnáttúrulegt í gangi en svo kom reyndar hugsunin að það hlyti samt að vera manneskja á bakvið þetta (sagði ehv scooby-doo?). Ég bjóst bara engan vegin við nágrannanum, það var samt á einum tímapunkti þar sem ég hélt að hún væri samt kannski in on it en ekkert meira en það. En vá ég fékk bara svo mikla ónotatilfinningu og þessi bók náði mér alveg.
This entire review has been hidden because of spoilers.
Fínasti spennusagnar krimmi sem fór vel með jóla konfektinu. Spilar á mörk hins raunverulega og óraunveruleg og heldur manni alla spenntum í gegnum alla bókina.
æði hlusti bók og spennandi. fór a myndina og fattaði svona seinasta korterið að ég las hana þegar hún kom fyrst ut og akvað að hlusta aftur, gaman að upplifa beisikli 3x