Jump to ratings and reviews
Rate this book

Málleysingjarnir

Rate this book
Rúmenía 1989: Mihail er átta ára, einrænn rúmenskur piltur sem býr við þröngan kost í Búkarest þegar forsetahjónin eru tekin af lífi í þjóðfélagsbyltingu. Algjör ringulreið ríkir - sem hefur mikil áhrif á fjölskyldu og alls hans umhverfi.

Ísland 2000: Unglingarnir Bergþóra og Finnur eru samrýnd systkini þótt ólík séu, hún luraleg og félagsfælin en hann á hraðri uppleið ,,í gráðugan faðm vaxandi klámfíknar." Heimili þeirra er í upplausn, foreldrarnir á barmi skilnaðar en leita leiða til að láta hlutina ganga upp.

Í þessari viðamiklu skáldsögu segir frá ungu fólki í flóknum og um sumt fjandsamlegum heimi, en um leið er umbrotaskeiði lýst í fjörmikilli frásögn sem einkennist í senn af frjóu ímyndunarafli og sterkri tilfinningu fyrir sérkennum fólks og sögu.

Málleysingjarnir, sem er fyrsta bók Pedros Gunnlaugs Garcia, er óvenjulegt skáldverk í íslenskum bókmenntun og má með sanni segja að hér kveði við nýjan tón. Sagan hlaut Nýræktarstyrk Miðstöðvar íslenskra bókmennta árið 2017 með afar lofsamlegri umsögn.

436 pages, Hardcover

First published January 1, 2019

Loading...
Loading...

About the author

Pedro Gunnlaugur Garcia

8 books45 followers

Ratings & Reviews

What do you think?
Rate this book

Friends & Following

Create a free account to discover what your friends think of this book!

Community Reviews

5 stars
27 (29%)
4 stars
28 (30%)
3 stars
28 (30%)
2 stars
8 (8%)
1 star
1 (1%)
Displaying 1 - 18 of 18 reviews
Profile Image for Kristín Jónsdóttir.
5 reviews5 followers
August 22, 2022
Óvenjulega frumleg bók, mögnuð og súrrealísk. Kom mér eiginlega á óvart á hverri einustu blaðsíðu!

Stíllinn er stundum beiskur eða háðskur og efnistökin nöpur, en samt er þetta skrifað af svo mikilli sagnalist að það er ómögulegt annað en að lesa áfram og heillast. Persónurnar eru litríkar og dregnar upp á sannfærandi hátt og manni stendur ekki á sama um þær, jafnvel þótt þær séu stundum fyrirlitlegar.

Síðustu 50 blaðsíðurnar eru síðan mjög spennandi og algjör rússibanareið, en svo endar þetta á lágstemmdri en átakanlegri frásögn, smásögu nánast, um einmanaleika.

Metnaðarfull og yfirflæðandi af furðulegum pælingum og myrkum húmor. Kannski of mikið fyrir suma, en mæli með fyrir lesendur sem vilja prófa eitthvað alveg einstakt.
Profile Image for Benedikt Traustason.
25 reviews2 followers
Read
April 7, 2024
Mjög hrifinn af fyrri hlutanum en seinni náði ekki alveg til mín. Ótrúleg hugmyndaauðgi og skemmtilegur lestur
Profile Image for Berglind.
Author 2 books11 followers
June 1, 2022
Geggjuð bók og frábær viðbót í íslenska bókmenntaflóru! Bókin tekur mann á sjúklegt ferðalag til Rúmeníu, Íslands og um Evrópu, með dash af súrrealisma sem virkar ótrúlega vel. Þjóðfélagslýsingin á Íslendinginum er ótrúlega fyndin (því hún er sönn!). Málleysingjarnir fjallar um mennskuna: græðgi, ofbeldi, óréttlæti, fjölskyldutengsl og stóru spurninguna um tilgang lífsins.
Profile Image for Heiður Anna Helgadóttir.
56 reviews11 followers
December 27, 2023
Þessi var geggjuð. Finnst eins og ég hafi aldrei lesið svona eftir íslenskan höfund. Pedro Gunnlaugur García auðveldlega einn uppáhalds íslenski rithöfundurinn þessa stundina.
Profile Image for Birgitta Guðmarsdóttir.
Author 4 books23 followers
November 5, 2019
Mögnuð. Lýsingarnar eins líkamlega óþægilegar og þær gerast, en pælingarnar eru mjög flottar. Það er einn kafli í miðjunni sem er aðeins of langur en endirinn gerir hann alveg þess virði. Senan með sebrahestinum fór alveg með mig.
2 reviews1 follower
August 2, 2023
Myndi gefa 4,5.
Frábær bók og skemmtilegt hvernig hún er kaflaskipt, fannst fyrsti hluti hennar, Rúmenía, skemmtilegastur. Sérstaklega þá að fylgjast með Mihail, mjög erfitt á köflum að lesa hana með öll munaðarlausu börnin, eiturlyfin, sérstaklega þann yngsta. Mikið af sorg og erfiðum, uppeldi Mihails er þungt fyrir hjartað en frábærar sögusagnir og ótrúlegt hvernig Pedro Gunnlaugur getur sagt frá þessum tíma eins og hann sé samtímamaður.
Íslands-kaflinn er líka skemmtilegur, soldið hratt farið yfir sögu fyrst, mjög erfiður á köflum líka. Endir bókarinnar er mjög hasarlegur og svo fannst mér ég vera kipptur snögglega úr þeirri stemmingu og bókin enduð einnig snögglega, ekkert svosem að því en ég hef margar spurningar ósvaraðar…
This entire review has been hidden because of spoilers.
27 reviews7 followers
July 8, 2020
Byrjar mjög vel og ég kláraði fyrstu 280 blaðsíðurnar á stuttum tíma. Annar hluti hefst líka ágætlega en svo fór ég að eiga erfiðara með að halda þræði, og í lokin var svo mikið kaos í textanum að ég hætti að nenna að fylgja alveg... sögusviðið í Rúmeníu er sett vel upp en þetta neo-techno-cyborgish dæmi á Íslandi bara missti mig. Hlakka til að lesa meira eftir höfundinn engu að síður.
Profile Image for Kristín Hulda.
271 reviews11 followers
April 12, 2024
Rúmeníuhlutinn var frábær! Þegar ég las miðjuhlutann (sem mér fannst ekkert spes) hélt ég að ég hefði misskilið eitthvað og að bókin innihéldi nokkrar, aðskildar og hálfkláraðar sögur. Síðasti hlutinn sem tengdi allt saman var svo fjarstæðukenndur að hann varð algjört rugl. Hafði ekki gaman af lestrinum og hann vakti mig ekki til umhugsunar um neitt, mér þóttu hugvekjurnar missa marks. Textinn sjálfur er samt einstaklega vel skrifaður. Þetta er klárlega ekki léleg bók, bara alls ekki fyrir minn smekk.
Profile Image for Óttar Kolbeinsson Proppé.
84 reviews15 followers
January 3, 2020
Fyrsti hlutinn sem gerist í Rúmeníu virkilega virkilega góður en ég var ekki alveg nógu sáttur með þá stefnu sem sagan tók síðan.
Þetta var komið út í dálitlar öfgar og rugl undir lokin.
Profile Image for helga gunnarsdóttir.
19 reviews
Read
February 9, 2026
omg hún. var. svo. GÓÐ. fyrsti hlutinn. fyrsti hlutinn. síðustu tveir fóru dvínandi og var eiginlega alveg dottin út í lokin, sem er algjör synd
Profile Image for Sigurður.
156 reviews7 followers
July 16, 2023
Þetta er eldri bók en Lungu sem höfundurinn fékk íslensku bókmenntaverðalaunin fyrir. Hún er ruglingsleg, dálítið brjálæðisleg og stundum er eins og það sé ekki ljóst hvert hún ætlar. En hæfileikarnir leyna sér ekki og hún var aldrei leiðinleg að mínu mati. Ætla sannarlega að lesa Lungu í kjölfari.
Profile Image for Sara Hlín.
504 reviews
September 11, 2023
Langur og flókinn söguþráður sem fléttast saman á stundum súrrealíaskan hátt þannig maður þarf að hafa sig allan við að reyna að skilja samhengið. Mikið lagt í hverja einustu blaðsíðu þó svo að ég hafi ekki alltaf skilið hvert höfundurinn hafi verið að fara með mig. Átta mig ekki alltaf á hvort sögupersónan sé í draumaheimi eða raunheimi en á endanum small þetta allt ágætlega saman.
Profile Image for Einar Jóhann.
336 reviews13 followers
September 11, 2023
Viðamikil frumraun. Fyrri helmingurinn ívið betri þar sem lýsingarnar eru naprar og Pedro tekst vel til við að kynna lesandann fyrir ógnarstjórninni og hryllingnum í Rúmeníu. Í seinni hluta bókarinnar finnst mér hann taka sér of mikið fyrir hendur og þráðurinn tapast. Heilt yfir mjög fín bók en hann hafði bætt sig heilmikið þegar Lungu kom út
Profile Image for Guðrún Lilja.
16 reviews1 follower
August 20, 2024
Fyrri hlutinn greip mig alveg, ekki seinni. Hugmyndaflugið ótrúlegt. Fannst hún helst til spes á köflum en velti fyrir mér hvort ég þyrfti ekki bara að lesa hana aftur til að skilja hana betur og greinilegt að hann er að vísa í eitthvað sem væri gott að geta tengt. Mjög vel skrifuð en heillaði mig ekki alveg eins og Lungu gerði
Profile Image for Martína.
13 reviews1 follower
January 26, 2024
Mjög blendnar tilfinningar varðandi þessa bók. Til að byrja með var ég virkilega heilluð - fyrsti hluti frá Rúmeníu alveg frábær, sterk saga og svo mikil frásagnargleði í gangi - en annar og þriðji hluti fundust mér ekki eins sannfærandi og á köflum einfaldlega allt of.
Displaying 1 - 18 of 18 reviews