Alma Khan veit ekki af hverju henni, óbreyttum nítján ára starfsmanni í baunahúsinu á Hellisheiði, er boðið starf í einkagróðurhúsi hinnar heimsfrægu Olgu Ducaróvu. Helst dettur henni í hug að það tengist eitthvað Kríu ömmu hennar, sem þekkir Olgu eftir alræmdan leiðangur þeirra til Mars. Þegar Alma kynnist svo hinni leyndardómsfullu Indru umturnast lífið endanlega. Árið er 2096 og náttúran óútreiknanleg. Gamli miðbærinn er afgirtur og þar standa fúin hús í flæðarmálinu. Eitt þeirra á amma Ölmu og enginn skilur hvers vegna það er henni svona mikilvægt. Nornin er framhald Ljónsins sem hlaut Barnabókaverðlaun Reykjavíkur og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Hildur Knútsdóttir hefur skrifað fjölda vinsælla ungmennabóka og hlotið mikið lof gagnrýnenda. Hún fékk Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir Vetrarhörkur, sem ásamt Vetrarfríi var tilnefnd sem ungmennabók ársins í Tékklandi.
Hildur Knútsdóttir was born in Reykjavík, Iceland. She writes fiction for both adults and teenagers, as well as plays, screenplays and short fiction. Hildur is known for her evocative fantastical fiction and spine-chilling horror.
Her horror novella The Night Guest was chosen one of the best thrillers of 2024 by The New York Times. Her work has been nominated for The Locus Awards, World Fantasy Awards, The Dublin Literary Award and The Nordic Council Children and Young People’s Literature Prize, and has been awarded The Icelandic Women’s Literary Prize, The Icelandic Literature Prize, The Reykjavík Children’s Literature Prize for best original work and The Icelandic Bookseller’s Prize.
Ungmennaspennusaga, dystópía með dassi af fantasíu? SIGN ME UP. Meistaralegur spádómur um breytingar heimsins næstu 80 árin og hvernig Reykjavík gæti litið út. Er að hakka þennan þríleik í mig á ógnarhraða, góð leið til að verja fyrstu þrem dögum ársins ef þú spyrð mig.
A great story and so well written. It is so fun reading these series and I am always so curious to know what's going to happen next.
I am so excited to continue reading and start reading the next and final book of these series. I truly recommend reading these series and others books after Hildur Knútsdóttir. She is an exceptional writer who writes with such a thrilling and amazing way.
Ekki alveg jafn góð og fyrsta bókin enda þarf höfundurinn að eyða miklu púðri (eðlilega) í að skapa heiminn þannig að framvinda sögunnar líður fyrir það. Samt sem áður, mjög skemmtileg lesning.