Skáldsagan Austur segir frá Eyvindi, félagslega einangruðum hagfræðingi á fertugsaldri, og því hvernig líf hans fer ævintýralega úr skorðum í kjölfar þess að hann leitar ástarinnar á óhefðbundnum stöðum.
Eyvindur virðist á skjön við allt umhverfi sitt og aldrei passa í þau hlutverk sem honum er ætlað. Í vonlausri leit að tilgangi sínum í nútímanum verður fortíð hans sífellt merkingarlausari.
Í Austur fylgjum við Eyvindi á ferðalagi sínu um hin þrjú dæmigerðu sögusvið íslenskrar sagnahefðar; borg, sjó og sveit, með óvæntum brekkum og beygjum.
Hrapaleg ólukkusaga Eyvinds hélt mér frá fyrstu blaðsíðu. Í örskots stund fáum við að skyggnast inn í líf Eyvinds þar sem hann fær að upplifa hamingjusamt líf áður en höfundur sendir hann á vit ótrúlegustu og hryllilegustu atburða sem einn maður gæti lent í hvort eð er á sjó eða landi. Hef ekki tölu á hversu oft ég hló upphátt, ekki alltaf bara því hversu fyndin hún er heldur einnig í panikki yfir því hvað væri að gerast.
Get því eindregið mælt með bókinni ef þið vijlið bæta smá í hversdagslegri hryllingssögu í líf ykkar.
Meiri vitleysan. Fáránlega fyndin á köflum og Eyvindur bæði snilldar sögumaður og aðalpersóna. Rann hins vegar út í aðeins of mikið út í lokin fyrir minn smekk.
Þessi bók er algerlega einstök og bara betri við annan lestur. Öll sem hafa gaman af skemmtilegum bókum þurfa að lesa þessa - eitthvað gerist á síður hverri og þegar að maður heldur að þetta geti ekki orðið verra, verður allt verra. Hiklaus meðmæli, ein af mínum allra allra uppáhalds bókum!
Svo skemmtileg en lika svo óþægileg! Var alltaf að bíða eftir dauðri stund til að geta lagt hana frá mér en þá gerðist alltaf eitthvað nýtt sem ég þurfti að vita hvernig fór. Las hana alla í einu, algjör snilld!
Frábær bók, stutt og snörp, rússíbanareið frá upphafi til enda. Minnir svolítið á Gamlingjann á köflum, nema með miklu meiri hryllingi. Yndislega fyndin og kaldhæðin þegar það á við, og svo alveg hroðalega hrollvekjandi þar á milli. Aðdáendur Braga hafa beðið lengi eftir þessari bók og fengu svo sannarlega mikið fyrir peninginn!
Missti mig smá í lokin en annars bara fín bók! Maður finnur mikið fyrir þvi að þetta er fyrsta bók Braga en þrátt fyrir það er hún mjög góð. Ps. Gaman að sja hann sleikja upp Egill Helga fyrir smá plássi í kiljunni!
Ég veit eiginlega ekki hvað mér finnst um þessa bók. Í fyrsta lagi finnst mér á margan hátt eins og hún sé þrjár aðskildar smásögur. Í öðru lagi er hún ótrúlega grótesk eitthvað. En ég fílaða samt, og fíla að það eru einhvern veginn engir hnútar sem eru leystir. Braga Páli er drull og ég kem út úr lestrinum með miklu fleiri spurningar en ég hafði áður og absolút engin svör.
Svakalega góð byrjun með áhugaverðum pælingum og karakter en svo hallaði undan í þriðja hluta, en hún hélt mér bókin. Ég hlustaði á hana og stundum voru málfar villur sem trufluðu mig en veit ekki hvort það var lesarinn eða frá höfundi.
Ég kláraði hana bara vegna þess að mig langaði að vita hvernig höfundurinn vildi klára þessa vitleysu og hvort bókin ætti sér eitthvað andlag.
Súrrealismi er skrítinn. Ég var allan tímann að reyna að koma því fyrir mér hvað höfundur var að reyna að segja. Er þetta satíra af íslenskri sagnahefð? Er hann að gera grín að Bjarti í sumarhúsum, Þórbergi, Fjalla-Eyvindi og félögum. Eða er þetta bara bull saga um ekki neitt - sem er allt í lagi, en hún verður þá að fara eitthvað.
Svo er mjög erfitt að komast yfir allt 'gore-ið', rúnkið og mjólkurgjöfina.
Ég gef Braga það samt að byrjunim er geggjuð, sérstaklega tvistið sem kemur öllu af stað sérstaklega!
2.5 stjarna, námundaðar niður. Góðir sprettir en alltof langdregnar lýsingar, of mikið samhengislaust bull og af því ég þurfti að berja mig áfram til að klára hana
Ég er á báðum áttum með þessa bók. Hún er fyndin, tryllt og svo fáránleg að maður veit engan veginn hvað gerist næst. Á hinn bóginn er ekki mikið samhengi milli þessara þriggja meginhluta í sögu Eyva og vitleysan verður stundum yfirgengileg. Eyvi er soldið eins og blanda af Daníel og Ólafi Ragnari í öfgakenndri útgáfu af Vaktaseríunum (líkindin við Dagvaktina eru a.m.k. augljós). Góðar skáldsögur skilja auðvitað eftir sig fleiri spurningar en svör, en svörin hefðu mátt vera örlítið fleiri. Það hefði t.d. verið gott ef stöðunni með Edith og dularfulla fiskikarinu hefði verið fylgt eftir á einhvern hátt. Ég kann samt alveg að meta óhefðbundnu framvinduna og endinn að einhverju leyti.
Bragi hefur sérstakt lag á að halda lesandanum(mér í það minnsta) við efnið. Báðar bækurnar sem ég hef lesið eftir hann reyndust mjög fljótlesnar. Textinn er einfaldur og engum orðum sóað í óþarfa skraut. Þvert á móti reyndar, orð eru nýtt til að lýsa hryllingi.
Á meðan ég las þessa bók hló ég oft upphátt, krumpaði blaðsíður af óþægindatilfinningu og spólaði í gegnum hana af löngun til að vita hvað gerðist næst.
Fyrsti hlutinn fannst mér bráðskemmtilegur og veinaði oft úr hlátri, og því var ég mjög leið að lesa næstu tvo hluta sem voru ekki eins vel skrifaðir og tengslalausir við þann fyrsta. Undir lokin var ég orðin mjög þreytt á langdregnu ástandinu og ekki var það betra þegar hún endaði. Mæli samt alveg með því að lesa hana.
Eftir mjög skemmtilega byrjun fannst mér sagan verða einum og vitlaus og endaði á að hraðlesa síðasta hlutann, nennti ekki þessu rugli lengur. Sem sagt aðeins of óraunveruleg fyrir mig og engir töfrar í óraunveruleikanum, bara hrillingur.
Kímin, skemmtilega skrifuð. Nær einhverjum mjög íslenskum þrotanda. Veit ekki hvort það sé reynt að gera of margt, stundum fékk eg á tilfinninguna að það sé verið að vera sjokkerandi bara til þess að sjokkera en ekki endilega á neitt slæman hátt. Gat allavega ekki hætt að lesa hana.
GOATED!!!!! Elska þessa bók. Hún er ógeðsleg en svo skemmtileg. Hann fer um allan trissur og aumingja kallinn lendir í öllu því versta sem landið hefur upp að bjóða. Mæli svo mikið með þessari bók. Skemmtileg, sjokkerandi og auðlesin en þó vel skrifuð.