Þetta er náttúrulega skáldsagan sem allir, og þá meina ég allir, ættu að lesa núna og tala um meðan beðið er eftir því hvernig mál þróast með Kórónaveiruna - Corvid 19. Að ekki sé talað um ef allt færi nú á versta veg. Höfundur, sem nota bene er læknir, dregur upp góða mynd af aðstæðum fólks hér á landi og þá helst í Reykjavík í spánskuveiki faraldrinum 1918 og lýsir því hvernig svona pest hefur áhrif á líf fólks. Síðan dregur hann þræði inn í nútímann með þeim hætti að hárin rísa á höfði manns. Svipuð pest og spánska veikin kemur nefnilega til landsins frá Kína í febrúar og mars 2020, segir í þessari bók sem kom út haustið 2019 að ég held - og hér sitjum við nú akkúrat um þá daga og lesum í fréttum um það hvernig hún nálgast. Maður saknar þess helst í þessarri fínu og læsilegu bók að ekki skuli skrifað meir um það hvað geti verið í vændum í nútímanum, og þá á næstu vikum og mánuðum. Ef það verður bara brot af hryllingnum 1918 þá er ekki von á góðu.