Árið er 1976 og Sveinn Ólafsson vaknar að morgni þrettánda afmælisdagsins. Í veröld hans eru engir snjallsímar, tölvur og internet en litasjónvarpið er stórkostleg tækninýjung. Svo hvað getur hann gert þegar hann áttar sig á að hann er ástfanginn af Klöru? Hvernig bregst hann við þegar hann sér að hann er að fá hár á undarlegum stöðum? Eða þegar hann fréttir að kærasta pabba hans á von á barni, eða þegar sautján ára frænka hans ryðst inn á heimilið og sest að í herberginu sem er inn af hans eigin herbergi? Hvað gerir hann þegar honum finnst allir í kringum sig leggjast á eitt um að gera honum lífið leitt og tilveruna óbærilega? Að vera þrettán ára er lífshættulegt ástand og kannski það versta sem hægt er að lenda í - en um leið alveg einstök og ógleymanleg reynsla. Þrettán er endurskoðuð útgáfa á skálsdögunni Góða ferð, Sveinn Ólafsson sem kom út árið 1998 og hlaut mikið lof. Bókin hefur komið út bæði vestan hafs og austan og fengið sérlega góðar viðtökur.
Friðrik Erlingsson fæddist þann 4. mars 1962 í Reykjavík. Hann útskrifaðist sem grafískur hönnuður frá Mynd- og handíðaskóla Íslands 1983. Síðan hefur hann unnið við skriftir og á auglýsingastofu. Friðrik hefur samið og þýtt fjölda söngtexta, skrifað handrit að kvikmyndum og sjónvarpsefni, ævisögur og skáldrit fyrir alla aldurshópa. Skáldsagan Benjamín dúfa (1992) sem fjallar um hóp ungra drengja í Reykjavík á síðari hluta 20. aldar, hefur hlotið fjölda viðurkenninga og verið þýdd á fimm mál. Kvikmynd byggð á sögunni í leikstjórn Gísla Snæs Erlingssonar hefur fengið lof víða um heim. Friðrik skrifaði handritið að teiknimyndinni Litla lirfan ljóta sem frumsýnd var í Reykjavík í ágúst 2002.
Friðrik hlaut Barnabókaverðlaun Fræðsluráðs Reykjavíkur 2002 fyrir þýðingu sína á bók Monu Nilsson-Brannstrom Tsatsiki og mútta.
Góð þroskasaga unglings, sem var eldri en ég. Tilfinningar sem passa ekki alveg hjá barni, sen þarf að stækka upp í þær og máta þær við sig. Hlustuðum saman fjölskyldan, í bílferð og ræddum hvað var líkt og ólíkt, núna.