Inga Dagný Eydal hefur í nokkur ár glímt við afleiðingar þess að hafa veikst af of mikilli streitu og ekki getað stundað fasta vinnu síðan hún hætti í erilsömu starfi sem hjúkrunarfræðingur.
Hér segir Inga Dagný sögu sína og birtir brot úr dagbókum. Auk þess segir hún frá fólkinu sínu sem sumt þurfti einnig að takast á við áföll og alvarlega sjúkdóma. Konan sem datt upp stigann er saga konu sem tekst á við kulnun af æðruleysi en kemur líka oft auga á broslegu hliðarnar. Hún lítur gagnrýnum augum til fortíðar um leið og hún horfir fram á veginn í leit að lausnum og bata.
Saga af kulnun. Mjög góð lesning og skrifin bæði heiðarleg og falleg. Mæli með fyrir alla sem vilja fá aukin skilning á því flókna ferli sem kulnun er.