Ég hef ferðast víða staðið við helgidóm Majanna í frumskóginum heimsótt stærsta moll í Ameríku skoðað kóralrifin En í gær rann upp fyrir mér að ég hef aldrei séð broddgölt Hvernig má þetta vera? Þetta hversdagslegasta dýr Evrópu erkitákn í sögum og ljóðum og ég hef hvergi séð það nema í uppfærslu Þjóðleikhússins á Dýrunum í Hálsaskógi Og mér skildist þarna í gær að kannski muni ég lifa alla mína daga án þess að sjá broddgölt við iðju sína Það rann upp fyrir mér að ég veit ekki einu sinni hvernig ég ætti að haga ferðum mínum til þess að vera alveg viss um að sjá broddgölt Og í fyrsta sinn um árabil fannst mér veröldin óumræðilega stór
Innræti er fyrsta ljóðabók Arndísar Þórarinsdóttur sem áður hefur gefið út skáldverk fyrir börn.