‘Sorgarfugl’ segir kona sem hefur ekki talað árum saman. Limlest fórnarlömb viðbjóðslegra pyntinga koma í ljós hvert á fætur öðru. Úr fortíðinni teygir sig óendanleg illska sem smitar út frá sér eins og dauðapesti.
Daníel er nýgræðingur í rannsóknarhópi lögreglunnar í Reykjavík. Hann er innvinklaður í teymi sem eltist við helsjúkan og stórhættulegan morðingja. Helga, nýi félagi hans, er honum bæði innblástur og ráðgáta á sama tíma. Saman leggja þau allt í sölurnar til að fanga þann seka áður en fleiri fórnarlömb liggja í valnum.
En ekki er allt sem sýnist og grafinn djúpt í fortíðinni er sorgarfuglinn sem hefur svarið við öllum þeirra spurningum.
Sorgarfugl er fínasta skemmtun. Persónur eru áhugaverðar, það eru vendingar í bókinni og maður áttar sig engan veginn á plottinu fyrr en maður á að gera það. Það er varla hægt að biðja um meira í bók.
Ég hlustaði á bókina á hljóðbók sem höfundur las sjálfur og þótt Kolbrún hafi ágætisrödd og lesi skýrt þá þarf hún aðeins að passa sig á að lesa ekki of skýrt. Þegar maður ber fram h í persónufornöfn er maður yfirleitt kominn í aðeins of mikla ofvöndun sem verður pirrandi. En það ætti að vera auðvelt að bæta úr því í næstu bók.