Finnski verðlaunahöfundurinn Tapio Koivukari er löngu orðinn landsþekktur fyrir skáldsögur sínar sem komið hafa út í þýðingum Sigurðar Karlssonar. Hann bjó á Ísafirði í mörg ár og hefur þýtt fjölda íslenskra skáldverka yfir á finnsku. Ljóðabókin Innfirðir er fyrsta bókin sem Tapio skrifar á íslensku. Hér fjallar hann um kynni sín af Vestfjörðum og Íslandi ásamt ferðum um aðra heimshluta uns hann staðnæmist í heimahögum sínum á vesturströnd Finnlands. Í bókarlok ferðumst við síðan með skáldinu um innfirði hugans.
Höfundur er finnskur en talar reiprennandi íslensku, bjó lengi fyrir vestan. Hefur skrifað sögulegar skáldsögur sem gerast á Íslandi, t.d. um Baskamorðin/Spánverjavígin, en þessi ljóðabók er fyrsta verk hans sem er skrifað á íslensku (hinar voru þýddar úr finnsku). Alveg ágætis ljóðabók og hann er flinkur í málinu. Áhugavert konsept og kaflaskiptingar (Vestfirðir, Suðfirðir, Fjarðleysi, Innfirðir). Sumt betra en annað, og ljóðin aftast höfðuðu mest til mín (þau voru persónulegust).