Jump to ratings and reviews
Rate this book

Sjálfstýring

Rate this book
„Hérna sit ég, búin að snúa lífinu mínu á hvolf vegna nokkurra fingra á vitlausum stað í dálitla stund.“

Lífið virðist blasa við hæfileikaríkri, ungri konu. Hún á góða vini, ástríka fjölskyldu og er á leiðinni í spennandi inntökupróf við virtan tónlistarskóla erlendis. En eftir það sem vinur hennar gerði í partíinu um jólin upplifir hún aðeins einkennilegan doða og tengslaleysi við sjálfa sig og sína nánustu.

Sjálfstýring er grípandi samtímasaga sem fjallar á raunsannan hátt um afleiðingar ofbeldis og leiðina til baka út úr myrku herbergi. Sagan sigraði í samkeppni Forlagsins Nýjar raddir 2020.

76 pages, Paperback

Published January 1, 2020

46 people want to read

About the author

Guðrún Brjánsdóttir

6 books22 followers

Ratings & Reviews

What do you think?
Rate this book

Friends & Following

Create a free account to discover what your friends think of this book!

Community Reviews

5 stars
62 (46%)
4 stars
52 (38%)
3 stars
15 (11%)
2 stars
2 (1%)
1 star
3 (2%)
Displaying 1 - 10 of 10 reviews
Profile Image for Karl Hallbjörnsson.
677 reviews75 followers
August 30, 2020
Erfið en samtímis skemmtilega glettin frásögn, skýr og björt í máli og full af myndlíkingum — eða ætti maður kannski að segja tónlíkingum?
Profile Image for Jóna.
45 reviews
October 26, 2022
Vel gerð frásögn af áhrifum kynferðislegrar misnotkunar með tilvísun í tónverk sem dýpka þær tilfinningar sem verið er að lýsa. Um er að ræða 1. persónu frásögn brotaþola sem áttar sig í byrjun ekki á því að á henni hafi verið brotið. Mér finnst höfundi takast með næmni að lýsa flóknu tilfinningaferli.

Þessi bók verður vonandi tekin inn sem lesefni allra framhaldsskólanema því hún er lærdómsrík bæði sem bókmenntaverk og einnig um það hvað má og hvað má alls ekki. Hún er mikilvægt framlag í "metoo" umræðuna.
Profile Image for Þorgerður María.
28 reviews3 followers
June 30, 2021
var ekki búin að kynna mér umfjöllunarefnið þegar ég byrjaði og ætlaði bara að lesa mér til gamans aðeins fyrir svefninn en endaði á að loka bókinni snemma og horfa á netflix þátt til að róa mig niður en höfundur nær að lýsa því með einsdæmum hvernig líðanin er eftir að verða fyrir kynferðisofbeldi. Sjálfsásökun, afneitun og efasemdir um alvarleika ásamt algjörum tengslarofum við eigin líkama og sál! Bravó, kláraði svo strax daginn eftir og grét. Er djúpt snortin takk.
This entire review has been hidden because of spoilers.
Profile Image for Lis Agerbæk.
118 reviews3 followers
June 19, 2024
En okay lille bog, men ikke det store sus. Vil nok egne sig godt blandt unge til en debat om samtykke før sex. Gennemført form - som læser forstår jeg, at den unge kvinde føler sig fremmedgjort, som vi sagde i 1970'erne, efter uønsket seksuel opmærksomhed. Men stor litteratur synes jeg ikke, det er.
Profile Image for Elín Gunnlaugsdóttir.
109 reviews4 followers
March 16, 2024
Áhrifamikil saga um áfall og úrvinnslu úr því. Sagan fjallar um unga tónlistarkonu og eru öll kaflaheiti fengin úr tónbókmenntunum, prelúdía, fúga osfrv þetta fannst mér mjög skemmtilegt. Bókin er annars skrifuð af miklu næmi og það er gott flæði í textanum. Ég mæli með þessari bók.
Profile Image for Tinna.
13 reviews2 followers
October 2, 2022
TW: þessi bók fjallar um kynferðisofbeldi og eftirköst kynferðisofbeldis.

Vel skrifuð bók sem nær mjög vel utan um viðbrögð, hræðslu, afneitun, skömm og hugarheim þolanda eftir kynferðisofbeldi.
Displaying 1 - 10 of 10 reviews