Taugaboð á háspennulínu er tvískipt ljóðabók um tjáningu og einangrun með lifandi myndum og marglaga tengingum sem koma á óvart. Fyrri hlutinn fjallar um samband ómálga barns og eldri manneskju sem er að tapa málinu. Í seinni hluta skoðar ljóðmælandi umhverfi sitt og þrár samhliða vísindalegum skýringum á náttúrunni. Fyrir þetta fyrsta verk sitt fékk skáldið Nýræktarstyrk Miðstöðvar íslenskra bókmennta.
hljóð er loft sem titrar þegar það mætir mótstöðu heimsins
orð bragðast eins og níðþungt blásturshljóðfæri úr málmi
Ég var afar hrifin eða hrifnari af fyrri hlutanum, hvernig höfundur dró upp andstæður þess sem nemur mál á meðan annar tapar því. Fannst hann ná góðu flugi. 💎