Jump to ratings and reviews
Rate this book

Hundalíf… með Theobald

Rate this book
DÝRMÆT AUGNABLIK

Í daglegum gönguferðum sínum ræða ungur hundur og gamall maður saman um lífið og tilveruna. Gamli maðurinn heitir Þráinn og sambýlishundur hans er franski bolabíturinn Theobald. Þetta eru örsögur og örstutt samtöl. Gaman og alvara. Safn lítilla ævintýra um fjölbreytni hversdagsleikans.

− Glás af dýrmætum augnablikum, segir Theobald. Við Theobald vitum ekki frekar en aðrir hvert ferðinni er heitið né hvenær göngunni lýkur og höldum ótrauðir áfram … áleiðis á stefnumót við vindinn, regnið, skýin og það sem á vegi okkar verður. Við erum að safna dýrmætum augnablikum og stundum finnst okkur að við séum moldríkir og langar til að deila ríkidæminu með öðrum.
− Meinarðu með fólki sem ekki nennir sjálft út að labba? segir Theobald.
− Já. Og líka með fólki sem getur hreyft sig og hreyfir sig eins og við
– og svo líka þeim sem ekki geta hreyft sig.
− Það held ég að sé erfitt, segir Theobald.
− Við skulum samt reyna. Dýrmæt augnablik eru auðvitað brothætt en kannski er hægt að vefja þeim inn í góðan pappír og vona að einhver þeirra komist óbrotin til skila …

183 pages, Paperback

First published January 1, 2020

Loading...
Loading...

About the author

Ratings & Reviews

What do you think?
Rate this book

Friends & Following

Create a free account to discover what your friends think of this book!

Community Reviews

5 stars
4 (22%)
4 stars
7 (38%)
3 stars
6 (33%)
2 stars
0 (0%)
1 star
1 (5%)
Displaying 1 - 3 of 3 reviews
Profile Image for Hákon Gunnarsson.
Author 29 books164 followers
December 3, 2020
Þessar örsögur af samskiptum hundsins Theobald og Þráinns byrjuðu víst líf sitt sem póstar á facebook, but hafa síðan komist yfir í bókarform. Þetta eru alveg bráðskemmtilegar sögur sem ég hafði mikið gaman að.
Profile Image for Emma Viktorsdóttir.
330 reviews
December 14, 2022
Dásamleg bók. Ég er að elska þessar samræður, sumar af þeim hefði mér aldrei dottið í hug að eiga við minn hund og því gaman að skyggnast inn í hugsanir annarra og samræður. Ég upplifði miklar tilfinningar þegar ég hlustaði á bókina þar sem ég átti svo margar samræður við hundinn minn um lífið og tilveruna. Það er svo sannarlega gott að eiga hund sem besta vin ♥️
Profile Image for Magnús.
376 reviews10 followers
April 30, 2021
Stórskemmtileg og frumleg bók um samband manns og hunds, bæði fyrir okkur hundaeigendur en eflaust líka ykkur hin sem hafið átt eða eigið eftir að eiga hunda.
Displaying 1 - 3 of 3 reviews