What do you think?

Sólgarðurin
The second collection of poems by the author Beinir Bergsson.
Eg leggi oyrað móti madrassuni
Hoyri tað yðja í ymiskum maðkum
Sólgarðurin er bæði eitt nýtt og brúnt yrkingasavn við einum veldigum blómutyssi á forsíðuni eftir sørvingin Beinir Bergsson.
Insektini og skriðdjórini mala inni í bókini, og ein svartaklukka sigur hey á baksíðuni.
Vit eru farin inn í Sólgarðin, sum bæði er eitt ítøkiligt og eitt ímyndað stað, har vit møta ommuni hjá eginum og abbanum, men mest av øllum eini ørgrinnu av plantum so sum vetrarsteinbrot, høsnagras, mýrufípu og berjalyngi saman gróðri og mjúkum, eymum løtum, sum sleingja seg eftir síðunum sum plantur, ið leingjast eftir ljósi upp eftir síðunum í bókini.
Vit eru bæði í einum sansaðum núi í samtíðini, har eitt meiri tilkomið eg fyriheldur seg til ein pápa, sum doyði, og í einum plantukendum heimi við sansandi erotiskum yrkingum um kærleika millum menn.
Tónin er friðarligur og innarligur við einum farra av longsli eftir teimum, sum eru farin í familjuni, og eru myndir av maðkum og grindalokkum afturkomandi.
Formtilvitað førkar teksturin seg aftur og fram í søguni hjá eginum í ymiskum aldrum, har Sólgarðurin er miðjan í søguni um alt, um ommuna, abban, pápan og um alt tað, sum hendir í einum sansandi veldi av lívrunnum veruleika.

68 pages, Paperback
First published March 16, 2021
Ratings & Reviews
Friends & Following
Create a free account to discover what your friends think of this book!
Community Reviews
Displaying 1 - 12 of 12 reviews
Read
May 20, 2026Mjög falleg. Kyndir undir djúpa löngun mína í eigin garð. Beinir var einn af gestum Queer Situations — bestu bókmenntahátíðarinnar — og talaði mikið um þýðingar. Það er sérlega áhugavert varðandi þessa bók því nöfn blóma og skordýra geta oft verið bundin einhverjum þjóðsögum og eru því þýðingarmikið tól í ljóðagerð. Dýpri meining heitisins getur því auðveldlega tapast við þýðingu.
April 7, 2023
4 eller 5a jag vet inte riktigt. Men bra var den iaf. Kanske ännu bättre av att den var på danska. Blev lite mer mystik ??
Read
December 17, 2023Allt það sem lifir, vex, visnar og deyr
Són - tímarit um ljóðlist og óðfræði, 2023
Sólgarðurinn er önnur ljóðabók færeyska ljóðskáldsins Beinis Bergssonar sem vakti mikla athygli með frumraun sinni, Drengurinn og beinagrindin. Fyrri bók höfundar fjallar um glímu ungs drengs við sorgina í kjölfar þess að faðir hans veikist af krabbameini og deyr. Í Sólgarðinum kveður við nýjan tón, bæði í stíl og efnistökum, en hér fjallar Beinir um ástir tveggja karlmanna og „allt það sem vex, dafnar og visnar innra með okkur“, eins og segir í káputexta. Guðrún Brjánsdóttir hefur þýtt báðar bækur Beinis yfir á íslensku sem verður að teljast mikill fengur fyrir ljóðaunnendur því af einhverjum ástæðum ratar furðu lítið af bókmenntum frænda okkar Færeyinga yfir á hið ástkæra ylhýra. Sólgarðurinn kom upphaflega út í Færeyjum árið 2021 en á vegum bókaútgáfunnar Sæmundar haustið 2023 og var bókin tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.
Sólgarðurinn er mun kjarnyrtari og slípaðri bók en Drengurinn og beinagrindin, sem einkenndist af hráum og súrrealískum frásagnarljóðum, en undir niðri kraumar þó sama djúpa undiralda trega og dauða sem virðist einkenna höfundaverk Beinis, ef miða má við þessar tvær útgefnu bækur. Ljóðin í Sólgarðinum eru flest stutt og hver ljóðlína er yfirleitt ekki nema nokkur orð, þau eru auk þess öll án titils og skiptingin á milli ljóða er aðeins gefin til kynna með tákninu *.
Náttúran er allt umlykjandi í Sólgarðinum en það er þó ekki hin kalda og ægifagra náttúra sem gjarnan birtist í íslenskri ljóðlist heldur hin síkvika og endurnýjandi náttúra árstíðanna og jarðarinnar. Í bókinni birtist náttúran bæði sem endurnýjandi og eyðandi afl: „Amma stakk oft / hendinni inn í runnann / teygði sig eftir berjum / handa okkur / hún rispaði höndina / á greinunum // hún sagði / að garðurinn þrifist / á blóðinu okkar“ (bls. 8)
Kynlíf er að sama skapi víða í bókinni en það er ekki hið erótíska og smekklega kynlíf sem birtist oft í skáldskapi, heldur er það í senn holdlegt, ofsafengið og nátengt þeirri hringrás lífs og dauða sem vofir yfir öllu í Sólgarðinum. Sólgarðurinn er talin hafa brotið blað í bókmenntasögu Færeyja sem fyrsta færeyska ljóðabókin til að fjalla opinskátt um hinsegin ástir, en hinseginleiki hefur lengi verið viðkvæmt umfjöllunarefni í eyjunum. Í einu ljóði bókarinnar er kynlífi mannanna tveggja lýst eins og slagsmálum tveggja drengja: „ýttu mér af þér / og sestu á mig / öskraðu á mig / eins og tveir litlir strákar / sem slást / í bræði“.
Sólgarðurinn í titli bókarinnar á við lítinn einkagarð sem snýr á móti sólu, af því tagi sem margir Íslendingar eru með á lóðum sínum. Fram kemur í bókinni að Sólgarðurinn hafi verið byggður upp af ömmu ljóðmælanda en síðan verið viðhaldið af afa hans með hjálp ljóðmælanda eftir andlát ömmunnar. Sólgarðurinn verður að einskonar myndlíkingu fyrir lífið sjálft er ljóðmælandi kynnist bæði fjölskyldu sinni og sjálfu lífinu í gegnum garðinn.: „Ég sest / rétt hjá staðnum / þar sem systrafjólan óx / ég finn lyktina af henni / eins og hún lifi enn í loftinu / í kringum mig / ég finn hana enn / innra með mér“.
Vistkerfinu í Sólgarðinum er stillt upp á móti ástarlífi mannanna tveggja og galdur bókarinnar felst í því hvernig hringrás náttúrunnar og holdlegar hinsegin ástir spegla hvort annað. Þannig sameinast lífið, dauðinn og ástin í ljóðum sem eru í senn erótísk og ógnvekjandi. „í garði næturinnar / ferðast fingur þínir / hægt upp eftir / fæti mínum / hópur af / grápöddum / étur / dauða húð mína“.
Beinir Bergsson yrkir af mildi og næmi um fegurð hins smáa, innri og ytri náttúru, fjölskyldu- og vinaböndin sem umvefja okkur. Sólgarðurinn er falleg og djúp bók um eilíft samspil lífs og dauða og sýnir okkur hvernig ástin og sorgin geta hvor um sig verið grundvöllur fyrir vöxt.

December 31, 2023Ég kann ekki færeysku, en ég get skilið ansi mikið af orðunum. Ég keypti þessa bók í Tórshavn í október með það að markmiði að reyna að kynnast frændmálinu betur. Ég myndi segja að ég skildi 70% af orðunum en 30% af samhenginu við þennan lestur.
Það sem ég náði að skilja var virkilega fallegt og bókin fyrir mig náði að undirstrika fegurð og sérstöðu færeyska málsins, sem við Íslendingar ættum virkilega að fylgjast betur með og fræða okkur um!
Lesin uppí rúmi á gamlársdegi frá 13 til 14 sirka

January 18, 2025
En så fin gave, bogstaveligt og som metafor. Græs mellem tæerne, mælkebøtter, og så mere græs. Færøsk, men for mig dansk. Havescener og elskov, en efter den anden--de forvikles, mandekroppene og planterne. Det var en fin lille sag, men jeg ville gerne have haft flere sider for at forstå mere.
October 3, 2023
naturerotik, hvor smukt er det lige!? også lige at det er queer gør det jo bare lige 10 gange bedre. basicly hvis du ligesom mig elskede sommerfugledalen af inger christensen så vil jeg garantere dig at du også vil kunne lide denne intime lille digtsamling!
April 11, 2023
läste den på danska så jag kanske missade något, men trodde ändå att den var vacker
May 7, 2023
I alt 3,8. Alle havebillederne er smukke og nye, og fungerer i sammenhæng med kærlighedsscenerne. Måske vil den for mange ting på så få sider, så den kunne være mere fuldent. Men stadig så fin.
October 26, 2023
Sterkt konsept sem blandar saman hinsegin ástum og náttúru garðsins.
Snotur ljóð sem mynda samhangandi heild með endurteknum minnum.

May 8, 2024
3,5 ⭐️ Meget fin. Læste den i solen til lyden af fuglepip og det kan klart anbefales
March 25, 2025
Den færøske fauna derude, nærkontakten i sengen, bedstemors solhave og ormene der gnaver - måske mest på kirkegården... Det er meget blødt og fint på mange måder.
June 23, 2025
Meget sanseligt, erotisk og botanisk (billed)sprog. Samlingen betyder meget i den moderne færøske litteratur, specielt synsvinklen.
Displaying 1 - 12 of 12 reviews