Birta býr í óvistlegri kjallaraholu með ókunnugu, fullorðnu fólki. Það kýs hún þó miklu heldur en heimabæinn sem hún flúði eftir að hafa komið út sem trans við lítinn fögnuð fjölskyldu og vina. En svo hverfur konan í næsta herbergi sporlaust, og síðan önnur. Hvaða konur eru þetta og hvað verður um þær? Og hvað er Jóhanna, skólasystir hennar, að spá? Getur verið að hún sé skotin í Birtu? En veit hún þá hver Birta er?
Sterk er hröð og spennandi saga sem varð hlutskörpust í samkeppninni um Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur 2021.
Þetta er frábær bók, spennandi og skemmtileg. Margrét skrifar af mikilli næmni um málefni trans ungmenna, og fléttar þær áskoranir sem þau mæta inn í afskaplega spennandi sögu um mansal og spillingu í Reykjavík nútímans. Mæli eindregið með! Fjórar stjörnur, ef ekki fjórar og hálf.
Bókin er vel skrifuð og gefur mikilvæga innsýn í ekki einungis líf transfólks og hinsegin fólks heldur einning innflytjenda. Bókin ætti að vera skyldulesning fyrir alla aðstandendur trans fólks og sérstaklega foreldra þeirra. Loksins er líka gefin út ungmennabók þar sem ungmennin í bókinni hegða sér sem slík en ekki eins og þær steríótýpur sem fólk á til að skrifa um. Það eina sem ég hef út á að setja er að mér fannst sagan byrja fremur hægt og ég átti í smá erfiðleikum með að fá mig til að halda lestrinum áfram í fyrsta þriðjungi en eftir því sem leið á greip hún alla mína athygli.
Dásamleg bók sem ég byrjaði á í gær og kláraði í dag, gat bara engan veginn lagt hana frá mér og var sem betur fer í sumarfríi. Spennandi söguþráður sem veitir innsýn í aðstæður ýmissa minnihlutahópa. Áhugaverð persónusköpun og sagan hélt mér spenntri frá upphafi til enda og nú þarf ég strax aftur að finna mér eitthvað annað að lesa.
Mjög fín bók, frekar hæg en 21 kafli og kaflarnir eftir honum eru mjög góðir. Fjallar um Birtu sem er transstelpa og er ný flutt að vestan til reykjavíkur. Sagan fjallar um söguna hennar og maður fær að skyggnast inn á við og sjá hvernig henni líður. Birta tekst á við mikið og þar á meðal uppgötvar hún að einstaklingur sem hún tengist í gegnum herbergi sem hún leigir er á kafi í mannsali
Mjög góð bók um mikilvægt málefni en ég fílaði ekki alveg söguþráðin. Elskaði samt Birtu og Jóhönnu og samband þeirra. Lét mann líta á hindranir transbarna frá öðru sjónarhorni.
Bókin var fín en ég hefði viljað fleiri atburði fyrr í sögunni. Smá langdregin og einhvern veginn sami hlutir endurteknir aftur og aftur, þess vegna gef ég henni bara 3 í einkunn.