Jump to ratings and reviews
Rate this book

Tanntaka

Rate this book
* LJÓÐABÓK ÁRSINS 2021 *
– Morgunblaðið –

* TILNEFND TIL MAÍSTJÖRNUNNAR 2022 *

* TILNEFND TIL FJÖRUVERÐLAUNANNA 2021 *

* LJÓÐSTAFUR JÓNS ÚR VÖR 2021 *

Það kom ljóska til læknis
sagði læknir ég meiði mig
hér og hér og hér og hér
og hér og hér og hér og hér

Hann sagði þú ert með brotið
nafn
átta andlit og öll sýkt

Tanntaka er í senn frumlegt og þroskað verk, frjó og áleitin ljóðabók sem ferðast með lesandann um ólík tilverustig – barnæsku, móðurhlutverk, systralag. Ljóðin eru lofgjörð til þess að villast og vafra, umbreytast, fullorðnast og finna sinn innri styrk.

At once innovative and mature, this award-winning poet’s debut collection takes the reader on a journey through various stages of being – childhood, motherhood, sisterhood. Her poems are a poignant ode to wandering and getting lost, to growing up and stumbling on one’s inner strength.

80 pages, Paperback

First published September 17, 2021

Loading...
Loading...

About the author

Þórdís Helgadóttir

13 books55 followers
Thordis Helgadottir is an Icelandic author.

Her work has been nominated for the Nordic Council Literature Prize, the Icelandic Literature Prize, The Icelandic Women's Literature Prize, Maístjarnan – The Icelandic Poetry Prize and won The Jón úr Vör Poetry Prize. She was the 2019-20 Resident Playwright at The Reykjavík City Theatre.

She is a member of the writers' collective Impostor Poets.

Ratings & Reviews

What do you think?
Rate this book

Friends & Following

Create a free account to discover what your friends think of this book!

Community Reviews

5 stars
25 (50%)
4 stars
17 (34%)
3 stars
3 (6%)
2 stars
4 (8%)
1 star
1 (2%)
Displaying 1 - 5 of 5 reviews
Profile Image for Þorvaldur Sigurbjörn Helgason.
Author 9 books65 followers
Read
September 23, 2023
Goðafræði hversdagsins (Fréttablaðið, 21. október 2021)

Tanntaka er fyrsta ljóðabók Þórdísar Helgadóttur sem hefur áður vakið athygli fyrir smásagnasafnið Keisaramörgæsir (2018) auk þess sem hún er einn af meðlimum ljóðakollektífsins Svikaskálda sem sendu nýlega frá sér skáldsöguna Olíu. Viðfangsefni Tanntöku eru kunnugleg; móðurhlutverkið, hversdagsleikinn, kvíðinn, kynslóðaskiptin, en þótt við höfum rekist á þau hjá öðrum skáldum þá sannar Þórdís Helgadóttir hér að það er ekki umfjöllunarefnið sem gerir skáldið heldur það hvernig skáldið vinnur úr umfjöllunarefninu.

Tanntaka er auðug bók, uppfull af ferskum, óvæntum líkingum og kröftugu myndmáli. Ljóðin eru vissulega krefjandi og lesendur gætu þurft að rýna í sum þeirra nokkrum sinnum til að átta sig á samhenginu, en með hverjum lestri opnast ný gátt inn í ljóðheiminn. Í meðförum Þórdísar verða hversdagslegar athafnir að goðsögulegum viðburðum. Þetta sést vel í fyrsta ljóði bókarinnar, Fasaskiptum, sem hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör í byrjun árs. Þar fylgist ljóðmælandi með börnum sínum leika sér á ísilagðri Tjörninni þar sem þau keyra kuldaskóna í gegnum ísinn. Þessi sýn verður uppspretta frumspekilegra vangaveltna um eðli lífsins og tímans í þrungnu líkingamáli.

„Börnin en ekki ég treysta gljúpri himnunni / Yfir handanheiminum þar sem andardrátturinn / Rennur í öfuga átt. Enda er stutt síðan þau komu / Í gegn“.

Þá birtist meðgangan lesendum sem eins konar dulrænt ritúal í ljóðinu Síðan tók það skeið enda þar sem ljóðmælandi mætir með hópi kvenna á það sem virðist vera námskeið í fæðingarundirbúningi sem er leitt af véfrétt með sigin brjóst. Ljóðið er draumkennt og ekkert í því sem minnir á raunsæi eða natúralisma en samt fáum við sterklega á tilfinninguna að verið sé að lýsa einhverju ævafornu og svo inngrónu í mannkynið að við skiljum það fremur með innsæinu heldur en rökfræðinni.

Þórdís hikar ekki við að blanda saman þröngu og víðu sjónarhorni, þannig verður lífið táknmynd fyrir mannkynssöguna og mannkynssagan táknmynd fyrir alheimssöguna eins og í ljóðinu Babúskur þar sem hún lýsir sínu eigin fæðingarári:

„Miklahvell / man ég vel / mýþískan tíma / þegar risar gengu / og gulur broddur rann“.

Styrkleikur bókarinnar felst einna helst í því hvernig höfundi tekst að blanda saman gjörólíkum ljóðmyndum og tilvísunum svo úr verður dýnamísk kóreógrafía sem kemur sífellt á óvart. Tanntaka er ekki auðveld bók og gerir töluverðar kröfur til lesenda sem þurfa að hafa sig alla við til að ljúka upp marglaga myndmálinu. Líkingarnar jaðra á köflum við hið fáránlega (absúrd) eins og í ljóðinu Reimleikar þar sem höfundi tekst í einu og sama erindinu að vísa í Kommúnistaávarpið, eldgosið í Pompeii og bandaríska spjallþáttamenningu. Þetta getur virkað ruglingslegt en höfundur fer þó svo fagmannlegum höndum um ljóðformið að best er fyrir lesanda að gefast upp á öllum tilraunum til að reyna að „skilja“ inntak ljóðanna og leyfa skáldskapnum hreinlega að hrífa sig með í ferðalag á óvæntan áfangastað.

Niðurstaða: Kraftmikið og marglaga verk sem skapar ljóðrænu úr óvæntum áttum og ljáir hversdagslegum athöfnum dulrænt goðmagn.
Profile Image for Magnús Jochum Pálsson.
283 reviews12 followers
December 20, 2021
Ágætt bara. Aðeins of kryptískt fyrir mig, átti oft erfitt með að tengja eða skilja. Krefst endurtekins lesturs.
Profile Image for Guðrún Úlfarsdóttir.
174 reviews6 followers
Read
December 10, 2023
Skildi ekki helminginn. Fannst oft eins og ég væri að lesa falleg orð sett á shuffle. Síðasta ljóðið, Hryggjarstykki, samt algjör bomba.
Displaying 1 - 5 of 5 reviews