Jón Hjartarson var um árabil leikari hjá Leikfélagi Reykjavíkur og hefur leikið ótal hlutverk á sviði, í sjónvarpi, útvarpi og kvikmyndum. Jón er höfundur fjölmargra leikrita og leikgerða fyrir börn og fullorðna, auk barna- og unglingabóka. Hann hefur einnig skrifað samtalsbækur og samið fjölda skemmtiþátta, pistla og söngtexta. Troðningar er fyrsta ljóðabók hans.
Álútur
treð ég garðstíginn varlega ræturnar liggja djúpt samt skjóta þær upp kollinum eins og óþekktarormar í rigningu
Snoturlega samin ljóðabók. Afi sem smíðar líkkistur, kvennaliðið í fótbolta, fjallapríl og vangaveltur um hitt og þetta. Fólkið á heiðinni sem bíður eftir gestum og langrækni í garð Kópavogs "vegna þess sem gerðist - á fundinum forðum - þarna á hólnum við lækinn ..." Fín lesning.