What do you think?

jóðL
Bragi Valdimar Skúlason er landsmönnum að góðu kunnur sem Baggalútur og umsjónarmaður skemmtiþátta í sjónvarpi. Hann hefur undanfarin ár verið einn vinsælasti laga- og textahöfundur þjóðarinnar og margir þeirra orðið fólki hugstæðir.
Í þessari bók má finna mörg af þekktustu kvæðum Braga Valdimars – og mörg óþekkt – og kveðskapurinn fjölbreyttur. Hér eru gamankvæði, ástarkvæði, ferðavísur, lífsspeki, kvæði um styttur og firði, menn og mön ... Og alltaf yrkir Bragi af fádæma hagleik, fyndni og orðkynngi sem fáum öðrum er gefin.

120 pages, Hardcover
Published January 1, 2021
Ratings & Reviews
Friends & Following
Create a free account to discover what your friends think of this book!
Community Reviews
Displaying 1 - 6 of 6 reviews
June 5, 2023
Líklegast einn besti textahöfundur Íslands svo það er gaman að sjá hann við ljóðagerð og gaman að sjá textana hans við lög sem allir þekkja í öðru samhengi.
Ekki löng bók en góð, mörg ljóðanna fyndin eins og við var að búast en ekki tilgerðaleg. Ljóðið til Vigdísar auk allra stuttu ljóðanna um staði og fólk standa upp úr. En þó erfitt að gera upp á milli, lítið um eitthvað sem gætu kallast veikir punktar.

December 15, 2021
Fín ljóðabók, sum ljóðin síðri en önnur eins og gengur. Þau bestu tær snilld sem eiga eftir að lifa með þjóðinni. Gördjöss, Mamma þarf að djamma og Það snjóar. Braga Valdimar er fátt óviðkomandi, hann hefur víða drepið niður fæti og ort um hin ýmsustu krummaskuð. "Villtist yfir hundblautt haf Hrafna-Flóki. Næðingsskeri norsku gaf nafn í djóki." Full af góðum húmor og hressleika.
January 15, 2022
Skemmtileg ljóðabók. Mæli svo sannarlega með henni bæði fyrir þá sem erum ljóðaunnendur og líka fyrir þá sem vilja lesa vandaðan og fyndinn texta
Read
January 30, 2022Mjög skemmtileg!
January 2, 2024
Bragi er einstaklega orðheppinn maður. Víðlesinn og með ofgnótt af orðaforða. Glúrinn og hnyttinn. Margir fallegir textar sem sungnir hafa verið. Ánægjulegt.
This entire review has been hidden because of spoilers.
December 18, 2024
Dásamleg ástarljóð, sönglagatextar Baggalúts, kennileiti Reykjavíkur og líkamsvessavísur - allt í einum hrærigraut!
Displaying 1 - 6 of 6 reviews