Efndir er fyrsta skáldsaga Þórhildar Ólafsdóttur. Bókin fjallar um Elísabetu, sem finnur eftir margra ára búsetu í Frakklandi, að hún þarf að fara til æskuslóðanna á Íslandi til þess að ganga frá sínum málum. Þar reynir hún að hnýta lausa enda og vinna bug á sorginni og vonleysinu sem hefur fylgt henni lengi. Hún sest að í gamla húsinu þar sem hún ólst upp og fer að skrifa í von um betrun. Efndir er allt í senn, óður til heimalandsins, ferðalag um hugarheim íslenskrar sveitastelpu, vangaveltur um sorgina og sektina.
Ólöf Þórhildur Ólafsdóttir er fædd árið 1953 á Hvammstanga. Hún nam bókmenntir og málvísindi í Frakklandi og kenndi þau fræði við Háskóla Íslands á níunda áratug síðustu aldar. Frá 1988 hefur hún búið Strasbourg í Frakklandi þar sem hún vann í 25 ár í ýmsum deildum Evrópuráðsins, þau síðustu sem yfirmaður menntamála og æskulýðsmála. Árið 2020 kom út hjá Skriðu ljóðabók Þórhildar, Brot úr spegilflísum. Þórhildur hefur einnig þýtt úr tyrknesku bókina Memed mjói eftir Yashar Kemal sem kom út hjá Máli og menningu árið 1985.
Æ, ég var nú hálf fegin þegar bókin loks endaði. Aðalpersónan þótti mér fljótt þreytandi. Að auki er þreytandi að lesa af gráma pappírsins og eiginlega ekki til neins nema við góð birtuskil.