Jörundur Jónsson fór sem fátækur unglingur að heiman frá Kleifum í Ólafsfirði eftir að móðir hans dó af barnsförum. Um árabil var hann til heimilis á ýmsum bæjum á austurströnd Eyjafjarðar þar sem honum tókst að brjótast úr hlekkjum fátæktar og vinnumennsku og verða sjálfstæður útgerðarmaður. Hann efnaðist og árið 1862 settist hann að í Hrísey með fjölskyldu sinni. Þar hélt velgengni hans áfram og Jörundur gat sér orð fyrir að vera einn fengsælasti hákarlaveiðimaður landsins, áræðinn og farsæll skipstjóri. Viðurnefni hans, Hákarla-Jörundur, segir meira en mörg orò. Um hans daga varò atvinnulífsbylting á Eyjafjarðarsvæðinu í kjölfar fjármagnsmyndunar vegna stóraukinnar framleiðslu hákarlalýsis til sölu á erlendum mörkuðum og sauðasölu til Bretlands. Breytingarnar komu samfélaginu úr kyrrstöðu sjálfsþurftarbúskapar í átt til hagvaxtar og markaðsbúskapar. Greint er frá mikilvægum þætti Hákarla-Jörundar í þessum umskiptum.