Alls konar íslenska: Hundrað þættir um íslenskt mál á 21. öld er safn fjölbreyttra þátta um íslensku eftir Eirík Rögnvaldsson. Umfjöllunarefnin eru margvísleg, allt frá eldheitum „málvillum“ og yfir í umræðu um þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir á 21. öldinni hvað varðar til dæmis viðmið í málrækt, samfélags- og tæknibreytingar og kynjamál og kynhlutleysi í máli. Meginþráðurinn í umfjöllun Eiríks grundvallast þó á gildi tungumálsins í menningu okkar, að tungumálið sé fyrir okkur öll, ekki útvalda, og nauðsyn þess að umræða um málfar og tungumálið sé jákvæð og umburðarlynd.
Alls konar íslenska vekur lesendur til umhugsunar um tungumálið, stöðu þess og framtíð og stuðlar að jákvæðu viðhorfi málnotenda til íslenskunnar.