Hvers vegna er Doritos þjóðarsnakk Íslendinga? Hvað merkir það þegar íslensk fyrirtæki draga hinsegin fána að húni á meðan á heimsókn varaforseta Bandaríkjanna stendur? Hvers vegna er garðhúsgagnadeildin í IKEA á Íslandi svona stór? Hvað getum við lært um ást af kvikmyndinni Groundhog Day? Af hverju eigum við að varast drauma okkar? Og af hverju er svona erfitt að reyna að hafa gaman?
Í þessari bráðskemmtilegu bók reynir Halldór Armand að svara þessum spurningum og fjölda annarra. Hann skrifar beittar greiningar á íslenskum samtíma og stjórnmálum og fjallar um fáránleika markaðsþjóðfélagsins þar sem fólk lætur gott af sér leiða með því að panta sér Dóminóspizzu og drekkur kók til styrktar flóttafólki. Þá segir hann óborganlegar sögur á borð við það þegar hann hitti Lin-Manuel Miranda í hádegismat og jafnframt af því þegar íslenskir lögreglumenn stoppuðu fjölskylduföður á þjóðveginum sem var bara „að reyna að hafa gaman“. Við erum bara að reyna að hafa gaman er sannkölluð þeysireið þar sem einn beittasti hugur sinnar kynslóðar tekst á við safaríkustu álitamál samtímans á Íslandi.
Halldór Armand Ásgeirsson (f. 1986) lauk meistaraprófi í lögum við Háskóla Íslands árið 2012 og hlaut nýræktarstyrk Miðstöðvar íslenskra bókmennta fyrir handritið að fyrstu skáldsögu sinni, Vince Vaughn í skýjunum (2013). Síðan þá hafa komið út Drón (2014), Aftur og aftur (2017), Bróðir (2020) og nú síðast Mikilvægt rusl (2024). Hann hefur einnig sent frá sér esseyjusafnið Við erum bara að reyna að hafa gaman (2022). Bækur hans hafa komið út á fjölda tungumála og pistlar hans um samfélagsleg málefni njóta mikilla vinsælda.
Halldór Armand Ásgeirsson (b.1986) is one of the young, extraordinary voices on the Icelandic literary scene. He completed a master’s degree in law at the University of Iceland in 2012 and received the Greenshots Award for the manuscript of his debut novel, Vince Vaughn in the Clouds (2013). Since then, he has published Drone (2014), Again and Again (2017), Brother (2020), and most recently, Important Trash (2024). He has also released the essay collection We’re Just Trying to Have Fun (2022). His books have been published in several languages, and his essays on social issues are highly popular.
Zizek staðfærður í íslenskt samhengi, síaður gegnum afbragðs góð skrif Halldórs Armand sem bregst ekki í færni sinni að setja saman góðan staf í þessari bók eins og hann er þekktur fyrir.