Elsu langar að mála og að því stefnir hún af miklum metnaði þótt fyrirmyndirnar séu fáar um miðja 20. öld. Hún stundar framhaldsnám í París þar sem hana dreymir um að komast í einkatíma hjá frægasta kennara borgarinnar og sýna verk sín í flottustu galleríunum. En það krefst fórna. Þetta rauða, það er ástin er áhrifarík skáldsaga um unga konu sem berst fyrir því að láta drauma sína rætast en ber eftir það sár sem hún getur ekki nefnt við nokkurn mann. Ragna Sigurðardóttir hefur hlotið verðskuldaða athygli fyrir sögur sínar, nú síðast sagnasafnið Vetrargulrætur.
Ragna studied art at the Icelandic College of Arts and Crafts, and continued her studies in Holland. For a while she lived in Denmark, but has now moved back to Iceland where she works as an author and artist. She published the booklet Stefnumót (Appointment) in 1987. Two years later came Fallegri en flugeldar (More Beautiful than Fireworks) and in 1991 27 herbergi (27 Rooms). Two of these books were illustrated by the author herself. In 1993 the novel Borg (City) was published, which awoke considerable interest in Ragna and was nominated for the Icelandic Literary Prize.
Hugljúf og falleg, mikil spenna í undirtextanum, sannfærandi karakterar, juicy lýsingar og flott þema – hefði kannski bara viljað dvelja aðeins lengur við til að finna betri úrlausn en ég var skilinn eftir með, en það kann að vera viljaverk af höfundarins hálfu
Ragna Sigurðardóttir velur sér mjög forvitnilegt yrkisefni í þessari bók. Heim myndlistarmanna í París í kringum 1950. Ragna nýtir sér í botn að hún er ekki aðeins rithöfundur heldur myndlistarmaður og er lýsingin á myndlistarheiminum afar trúverðug. Jú, jú slatt af klisjum um existensíalista, en samt gaman af nærveru Sartre og de Beauvoir og ekki síður Boris Vian. Frásögnin snýst um myndlistardrauma íslenskrar konu og dramatískt val hennar um hvort hún setji feril og frama á oddinn eða fjölskyldulíf. Innri baráttu konunnar er lýst á afar trúverðugan hátt. Frásögnin er örugg og allt gengur upp. Agnúar hafa verið sniðnir af og eftir stendur afar snotur bók. Þó er það réttmæt spurning hvort sagan sé ekki of fyrirsjáanleg – hvort fleiri þræðir (undirsaga eða álíka) hefðu ekki gert mjög góða bók enn betri. En þegar aðfinnsluatriðið er að bókin sé eiginlega of fullkomin, má höfundur vel við una. Ragna er greinilega í stuði þessi misserin og spennandi að fylgjast með henni.
Elsa er ein af þeim konum sem mig hefur langað að vera og með þessari bók fékk ég að vera fluga á vegg í lífi konu sem ég gat speglað mig í. Ég hlakkaði alltaf til að setjast niður og lesa í mig Parísarandrúmsloftið, myndlistina, ástina, vináttuna, matinn og dramatíkina, en leyfði mér líka að lesa hægt og loka augunum inn á milli, horfa á myndirnar sem höfundur málar svo fallega fyrir mann. Þessi bók er algjör fílingur. Ef þú fílar myndlist, París, góðan mat og bitra rómantík, þá gæti þessi bók verið fyrir þig. Hún gaf mér hlýtt í hjartað. Túlípanar, jarðarber og ferskjur.
Býsna góð og flækjurnar í sambandi þeirra Kjartans eru vel skrifaðar. Mjög sannur tónn í því hvernig Elsa pælir í hvernig og hvort Kjartan horfði á hana við hitt eða þetta tilefnið, auk þess sem hún er mjög meðvituð um hvenær þau heilsast með handabandi og hvenær ekki. En satt best að segja bjóst ég við aðeins meiru eftir að hafa lesið hina feykilega sterku Vetrargulrætur. Þó hef ég trú á því í þessi bók vaxi bara með tímanum, líkt og Vetrargulræturnar gerðu.
Hefði ekki verið fyrir elskhuga og Ítalíuferð hefði ég gleypt þessa orðadásemd upp til agna á einum degi, hvernig í ósköpunum sem hún fer að því þá hefur Ragna aftur skapað orðasynfóníu sem gleður og nærir.
Góð bók og upplýsandi um listamannalífið í París um 1950. Gaman að sjá þekktum persónum eins og Picasso skjóta upp kollinum. Hápunkturinn er um miðja bók og þá fór verulega um mig, þriggja barna móðurina. Ragna stendur alltaf fyrir sínu þótt það fari ekki mikið fyrir henni.
Saga frá miðri tuttugustu öldinni um Elsu sem langar að vera málari og hvernig hún fylgir draumi sínum fast eftir með þeim fórnum sem fylgja. Frábærir karakterar, París, list, ást. Vel skrifuð bók.