Jump to ratings and reviews

Bronsharpan

Nýr andstæðingur. Nýir bandamenn. Meiri máttur.

Rúmu ári eftir ævintýrið í hafinu er Elísa skyndilega stödd í ókunnum heimi. Þar kynnist hún fjórum ungmennum sem hafa svipaða krafta og hún. Gæslumenn grunnefnanna hafa verið kallaðir saman til að bjarga deyjandi heimi. En tekst þeim ætlunarverk sitt?


Þarna var hún!

Á upphækkuðum palli var skjannahvít stytta af konu. Hún sat á lágum kolli með bronslita hörpu í fanginu. Roðagullið bronsið var áberandi í marmarahöndunum og það glampaði á hljóðfærið í sólskininu. Elísa nálgaðist listaverkið, gjörsamlega hugfangin. Umhverfis styttuna var lágt grindverk. Á því hékk þunn steinplata með áletruninni:

Belinda og harpan.

Dulstafir, bók 1: Dóttir hafsins var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2020.

343 pages, Hardcover

Published October 12, 2022

Loading...
Loading...

About the author

Kristín Björg Sigurvinsdóttir útskrifaðist sem lögfræðingur frá Háskóla Íslands árið 2018 en ákvað svo að elta drauminn um að skrifa bækur. Dóttir hafsins var hennar fyrsta skáldsaga og var hún tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 2020. Bronsharpan er önnur bókin í bókaflokknum og var tilnefnd til Fjöruverðlaunanna árið 2022 ásamt því að vera valin besta barna- og ungmennabók ársins 2022 af bóksölum. Orrustan um Renóru er lokabindið í Dulstafaþríleiknum.


Ratings & Reviews

What do you think?

Friends & Following

Create a free account to discover what your friends think of this book!

Community Reviews

5 stars
31 (46%)
4 stars
26 (39%)
3 stars
8 (12%)
2 stars
0 (0%)
1 star
1 (1%)
Displaying 1 - 12 of 12 reviews
Profile Image for Anna (thefutureempress).
158 reviews43 followers
August 2, 2024
3.5 stars*
This was a completely different story than the first book. Unfortunately, this series is going in a direction that I just don't care for. The vibes were just not the same. I wanted more of what the first book was. That doesn't mean that the second book is bad, not at all. It was an overall good story, with the traditional adventure of a mismatch group of people and their character development. However, it did fall victim to a lot of YA tropes. While the first book pulled it off in a great way, this felt a bit more cliché, I can't quite point out why, except for my personal experience of the book. My intrigue was just a tad bit lower with this one and therefor my overall enjoyment effected the star rating. I'm definitely finishing the series, though.
However, with that all said, I'm not the target audience for this series, which is why my review doesn't matter in the overall scheme of things.
1 review
November 28, 2022
Virkilega skemmtileg og spennandi bók. Flott persónusköpun, góður húmor og gaman að fylgjast með samskiotum ungmenna sögunnar. Það verður erfitt að bíða eftir framhaldinu.
Profile Image for Svandís Sigurðardóttir.
8 reviews1 follower
October 21, 2022
Ótrúlega skemmtileg bók sem nær manni frá fyrstu blaðsíðu. Frábær karekterbygging og fyndin líka. Hélt mér alveg þó bókin sé skrifuð aðallega fyrir yngri lesendur. Mæli með að lesa bók 1 fyrst samt, sem er ekki síðri.
1 review
October 22, 2022
Frábær ævintýrabók fyrir alla þá sem elska ævintýri. Spennandi og grípandi. Vel skapaðir karakterar og söguþráðurinn flæðir vel.
Profile Image for Unnur María Sólmundsdóttir.
111 reviews
June 10, 2023
Bronsharpan er 2. bókin í Dulstafaseríunni og framhald af bókinni Dóttir hafsins. Þótt um unglingabækur sé að ræða féll ég algjörlega fyrir fyrri bókinni ekki síst vegna þess að höfundur skrifar hana á unglingsárum sínum og dustar svo rykið af hugmyndinni á þrítugsaldri og kemur henni út. Hugmyndin um marfólkið var líka þrælskemmtileg. Framhaldið var ágætis lestur líka, kannski ögn fyrirsjáanlegri á köflum en engu að síður fannst mér Kristínu takast að skapa skemmtilegan heim þar sem unnið er með frumefnin, þjóðernisrembing, ástir unglinga, traust, svik og margt fleira. Algjörlega hægt að mæla með þessum bókum fyrir mið- og unglingastig grunnskóla
Profile Image for Hugrún Björnsdóttir.
Author 3 books6 followers
July 6, 2024
Góð persónusköpun og gaman að sjá smá rómantík! Eins og í Dóttir hafsins þekkir höfundur söguheim sinn inn og út og því ekki hægt annað en að hrífast með!
2 reviews1 follower
October 21, 2022
Frábær bók sem hélt mér límdum við lesturinn. Spennandi og skemmtileg. Flott útvíkkun á heiminum sem höfundurinn skapaði í fyrstu bókinni. Mæli eindregið með, líka fyrir fullorðna.
Profile Image for Ester.
40 reviews1 follower
February 24, 2024
Þessi bók er gjör ólík Dóttur Hafsins en beint er beint framhald af henni. Hún er góð, sögusviðið allt annað og endirinn þannig að manni hlakkar til að lesa bók nr 3
Profile Image for Sunna Björk Þórarinsdóttir.
20 reviews
November 28, 2022
Allt of mikiđ af lýsingum á hlutum og umhverfi. Engin söguþráđur og ekkert ađ gerast eftir 259 blađsíđna lestur
Vel skrifuð, bardagalýsingar skila sér mjög vel í ímyndunaraflið. Vel gert þar.
Displaying 1 - 12 of 12 reviews