Jump to ratings and reviews
Rate this book

Máltaka á stríðstímum

Rate this book
Máltaka á stríðstímum er frásögn manneskju sem fylgist með stríði í heimalandi sínu úr fjarlægð. Hennar eigin þjóð, Rússar, hervæðist og ræðst inn í Úkraínu. Andstaða höfundar við stríðsreksturinn vekur margslungnar tilfinningar og spurningar sem glímt er við í bókinni. Bókin hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar.

Natasha S. er rithöfundur og þýðandi íslenskra bókmennta yfir á rússnesku. Árið 2021 ritstýrði hún bókinni Pólífónía af erlendum uppruna, ljóðasafni innflytjenda á Íslandi. Hún hefur jafnframt vakið athygli fyrir pistla og hugvekjur. Máltaka á stríðstímum er fyrsta bók hennar og fyrir hana hlaut hún Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2022.

„Máltaka á stríðstímum er áhrifamikið verk, brýnt og einstakt í sinni röð. Það er frásögn manneskju sem fylgist með stríði í heimalandi sínu úr fjarlægð. Hennar eigin þjóð – Rússar – hervæðist og ræðst inn í Úkraínu. Andstaða höfundar við stríðsreksturinn vekur margslungnar tilfinningar og spurningar sem glímt er við í bókinni. Þrátt fyrir átakanleg efnistök einkennist framsetning af lipurð og djúphygli. Skírskotanir í íslenskan raunveruleika færa atburði stríðs í nýtt samhengi og draga fram sláandi andstæður. Mannskilningur höfundar nær þvert yfir þjóðerni, búsetu, reynslu og bakgrunn. Þá er verkið djúppersónulegt þrátt fyrir að inntak þess séu umfangsmiklar hörmungar á alþjóðavísu enda er ástarsögu, minningum og endurliti fléttað saman við af listfengi.“

Úr umsögn dómnefndar Bókmenntaverðlauna Tómasar Guðmundssonar

59 pages, Paperback

First published January 1, 2022

2 people are currently reading
46 people want to read

About the author

Natasha S.

4 books2 followers

Ratings & Reviews

What do you think?
Rate this book

Friends & Following

Create a free account to discover what your friends think of this book!

Community Reviews

5 stars
34 (61%)
4 stars
17 (30%)
3 stars
4 (7%)
2 stars
0 (0%)
1 star
0 (0%)
Displaying 1 - 5 of 5 reviews
Profile Image for Magnús Jochum Pálsson.
281 reviews11 followers
January 5, 2023
Kaflinn „Að skilja” talaði mest til mín. En þetta er vel uppbyggt, þræðirnir eru ofnir vel saman og halda þessu fjölbreyttu.
Profile Image for amanda.
165 reviews20 followers
February 27, 2025
ótrúlega tilfinningaþrungin og mikilvæg bók, mæli mikið með
Displaying 1 - 5 of 5 reviews

Can't find what you're looking for?

Get help and learn more about the design.