Tinna er á leiðinni í vetrarfrí með foreldrum sínum þegar þau lenda í bílslysi á dimmum sveitavegi. Í kjölfarið er Tinna veðurteppt á sjúkrahúsinu í litlum bæ þar sem hún kynnist Dóru, dóttur yfirlæknisins. Dóra þekkir hvern krók og kima hússins og finnur upp á ýmsu skemmtilegu á meðan þær bíða eftir að óveðrið gangi yfir. Fúllyndur hjúkrunarfræðingur virðist alltaf vera á hælunum á þeim og drungalegir atburðir fara að gerast þegar þær hætta sér inn á deild spítalans sem er lokuð. Áður en þær vita af þurfa þær að berjast fyrir lífi sínu í dimmri vetrarnóttinni.
Æi vá hvað þessi var sæt. Samband Dóru og Tinnu var svo sætt og mjög frískandi að sjá hinsegin samband í unglingabók án þess að kynhneigð persónanna kæmi nokkurn tíman upp og enginn efaðist um neitt. Ritstíllinn var líka rosalega fallegur og sogaði mann alveg inn í söguna, nákvæmar og áþreifanlegar lýsingar sérstaklega á persónum. Mér fannst krakkarnir vera yngri en þau áttu í raun að vera, þau eiga að vera í kringum 15-16 ára en mér fannst þau meira vera eins og þau væru 13 ára, en það skemmdi samt lesturinn ekkert fyrir mér!
Ég elska þessa bók, léttilega uppáhalds bókin mín, ég fann, Allt er svart í myrkrinu, í skóla bókasafni og las eitthvað í skólanum en for svo alveg ofan í hana á sunnudaginn 8 janúar og kláraði kl 01:30 a skóla degi. En ég vill bara segja Elísabet að ég er mjög þakklátur fyrir bókina
This entire review has been hidden because of spoilers.