Jump to ratings and reviews
Rate this book

Útsýni

Rate this book
Sigurlilja er ung kona „sem passar ekki inn í normið“, eins og móðir hennar segir, og gædd óvenjulegri gáfu sem einfaldar ekki líf hennar. Þegar Teresa frænka hennar á Bakkafirði deyr kemur í hennar hlut að fara þangað norður og ganga frá dánarbúinu. Þá kemur í ljós að allir hafa eitthvað að fela – og sýna.

368 pages, Hardcover

First published October 20, 2022

12 people are currently reading
101 people want to read

About the author

Guðrún Eva Mínervudóttir

24 books106 followers
Guðrún Eva's first book, Sóley sólufegri, came out in 1998 in a very limited edition. In the same year the publishing house Bjartur published her short story collection Á meðan hann horfir á þig ertu María mey (While He Watches You, You are the Virgin Mary), to much acclaim. Since then Guðrún Eva has published five novels, a collection of philosophical stories for children published by The National Centre for Educational Materials and a book of poetry. She has also translated novels by foreign authors.

Ratings & Reviews

What do you think?
Rate this book

Friends & Following

Create a free account to discover what your friends think of this book!

Community Reviews

5 stars
31 (18%)
4 stars
93 (54%)
3 stars
41 (23%)
2 stars
6 (3%)
1 star
0 (0%)
Displaying 1 - 19 of 19 reviews
Profile Image for Davíð Þór.
2 reviews
Read
January 2, 2023
Reynsluheimur minn er sá að mér hentar skást að skrifa bóklega þanka um fræðirit, aðallega sagnfræði og lögfræði, en einnig að nokkru það sem kalla má heimildasögur, sögulegar skáldsögur eða sögur sem hafa skýra sögulega tilvísun til raunverulegs fólks og raunverulegra atburða. Ekki spillir fyrir ef í þeim er dass af heimspeki, pólitík og hagfræði. Ég hef þó lesið talsvert af skáldskap gegnum áratugina. Þannig les ég til dæmis allt eftir Gyrði Elíasson nema handritin sem hann er enn með í skúffunni hjá sér, enda kemst ég ekki í þau þar sem ég þekki manninn ekki neitt og veit ekki hvar hann á heima. Sagnaheimur hans höfðar sérlega mikið til mín. Ekki veit ég af hverju það er og hef ekki yfir að búa bókmenntafræðilegum orðaforða sem gerir mér kleift að skýra það á sannfærandi hátt. Kannski er það vegna þess að allir þessir introvertar og einfarar, sem Gyrðir töfrar fram í bókum sínum, höfða svona mikið til mín. Þrátt fyrir þessar takmarkanir mínar, og kannski vegna þeirra, ákvað ég, eftir að hafa ráfað einsamall langa stund milli drekkhlaðinna bókaborðanna í Pennanum í Kringlunni, að fara út fyrir þægindarammann, og spreyta mig aðeins á Guðrúnu Evu Mínervudóttur og bók hennar Útsýni.

Á kápu bókarinnar er saga Guðrúnar Evu Aðferðir til að lifa af ausin lofi af viðurkenndum og þekktum bókmenntadómendum, en svo vill til að þetta er eina bókin sem ég hef áður lesið eftir þennan höfund. Lofgjörðir af þessu tagi á bókarkápum hafa markaðsáhrif á mig og auka kauplöngun mína. Ég fell gjarnan fyrir svona auglýsingabrellum í bókamenntageiranum og hef oft setið uppi með bækur sem mér þóttu ekki rísa undir lofinu. Ég hef því oft verið gabbaður til að kaupa vondar bækur, svo það sé nú sagt. Í þessu tilfelli, vil ég trúa, að meira máli hafi skipt að mér fannst Aðferðir til að lifa af áhugaverð og mér lék forvitni á að kynnast höfundinum betur. Þori varla að segja það, en hún minnti mig á Gyrði.

Sagan er um unga konu Sigurlilju de Waal, sem er svo hávaxin og mjó að hún gæti málað „skipsmöstur að innan“. Sigurlilja er svolítið á skjön í lífinu, að áliti móður hennar. Höfundur áréttar þessa sérstöðu sögupersónu sinnar með ýmsum hætti. Hún á hollenskan föður sem hefur lítið af henni að segja. Hún passar ekki í bílsæti og flugvélar og ekki inn í læknavísindin, já eiginlega ekki inn í heiminn. Á dimmu vetrarkvöldi í Hafnarfirði sér hún ljósboga á himni, eins konar geimskip, líður út af og er vakin upp og fylgt heim af ókunnugum manni, sem kemur ekki frekar við sögu. Ef ég skil rétt er hún eftir þetta þeim hæfileika búin að sjá veruleikann með augum annarra í bókstaflegri merkingu. Þetta gengur eiginlega svolítið lengra því hún nánast klæðir sig húð annarra og er um tíma það fólk hvers augum hún sér heiminn með, að öðru leyti en því að hún getur ekki tekið líf þeirra yfir og stýrt því hvað það tekur sér fyrir hendur. Reynsla, hugsanir og kenndir þessa fólks verða hennar eigin á þennan passífa hátt. En hún er sérlega hávaxin og þannig er útsýni hennar meira en okkar hinna sem eru svona rétt í meðallagi og svo ég tali nú ekki um þá sem lágvaxnari eru. Nú veit ég að margir sem ég þekki lesa ekki undir nokkrum kringumstæðum bækur sem fjalla um geimverur, handanveruleika og önnur slík hindurvitni. Verð því að taka fram strax og þessi bók Guðrúnar Evu hefur, eftir mínum skilningi, ekkert sem slíkt að gera.

Ramminn sem höfundur mótar kringum þessa sérstæðu og margslungnu sögu er þó frekar einfaldur. Sagan hefst á að Sigurlilja (Lilja) tekur sér fyrir hendur, að ósk móður sinnar, ferðalag til Bakkafjarðar um sumarsólstöður til að ganga frá dánarbúi eftir aldraða frænku þeirra mæðgna, Teresu. Á þessu ferðalagi hittir hún fjölda fólks. Þessi einfaldi söguþráður heldur sögunni saman og skapar henni ramma, en innan hans er heill heimur og miklu stærri tímarammi en þarf til að leysa þetta tiltekna verkefni af hendi. Ég ætla ekki að spilla lestrinum fyrir mögulegum lesendum með því að rekja söguþráðinn hér nánar.

Á ferðalaginu kynnist lesandinn fjölda fólks; sögupersónunni sjálfri, Teresu frænku, nágrönnum og kunningjum hennar á Bakkafirði, öllu því fólki sem hún tekur sér bólfestu í til að sjá heiminn í gegnum og ýmsu öðru fólki sem staldrað hefur við í lífi hennar, svo sem skólafélögum, vinnufélögum og „vinum“, því óljóst er hvort hún getur átt vini yfirhöfuð. Þannig eru innan þessa ramma margar smásögur þar sem þessar persónur birtast, segja sína sögu og hverfa svo. Þarna er meira að segja glæpasaga. Þannig stendur aðalpersónan í miðju þessu persónugalleríi og setur sig í spor alls þessa fólks og hlustar á sögur þeirra. Þar stendur Sigurlilja utan við sjálfa sig, ef svo má segja og upplýsir lítið um sig, áform sín, langanir og þrár ef einhverjar eru. Lestur bókarinnar er afar sérstakt ferðalag sem höfundurinn býður lesandanum með sér í. Endir sögunnar er einnig sérstæður, svona í samhengi sögunnar‚ ef svo má segja, því skýringar á þessum hæfileikum Sigurlilju eru jarðbundnari en maður kynni að ætla. Segi ekki meira um það. Þetta skýrist síðari hluta bókarinnar.

Hver er lærdómurinn? Nú verður líklega hver og einn lesandi að ráða í það eftir sínum skilningi, eins og á við um allar góðar skáldsögur. Mér virðist ýmislegt koma til greina þótt ekki sé tryggt að höfundurinn myndi fallast á neitt af því, enda hef ég ekki þann hæfileika að sjá söguna með augum höfundarins sjálfs. Ég les bara textann eins og hann liggur fyrir út frá mínu afgirta sjónarhorni. Í öllu falli minnir sagan á að við erum í raun alltaf lokuð af við eigið sjónarhorn. Allir eiga sér sína sögu og allar eru þessar sögur áhugaverðar og verðugar. Sumar þeirra kunna að þykja hversdagslegar á ytra borði, en aðrar eru dramatískar og tilfinningaþrungnar. Góður er sá eiginleiki að geta sett sig í spor annarra og freista þess að horfa á heiminn frá annarra sjónarhóli og leggja sig fram um að skilja þannig afstöðu þeirra og sérstöðu betur. Hvert og eitt líf er þess verðugt að því sé lifað og það er sérstakt og frásagnarvert. En þessi eiginleiki að sjá heiminn sífellt með augum annarra er þó ekki heppilegur að öllu leyti því hann kann að leiði til þess að maður setji eigið sjálf til hliðar. Með því að lifa lífi annarra setur maður sitt eigið til hliðar. Það er einmitt það sem aðalpersónan gerir lengst af, hún dregur sig í hlé, hefur engin plön fyrir sig eða metnað sér til handa og er fjarlæg og einræn. Hún lifir í fjölskrúðugu lífi annarra. Eins og Guðrún Eva segir, Sigurlilja vistar sínar „sjálfur“ í símann sinn, en þær hverfa síðan þegar líftíma hans lýkur, svona eins og hann er gerður til. Sigurlilja skilur sjálfa sig eftir á ferð sinni um líf, huga, afstöðu og sjónarhorn annarra. Svo taka hlutirnir á sig aðra mynd þegar maður hefur ekki lengur þá sérstöðu að vera hlutlaus og velviljaður áhorfandi og verða þess í stað ábyrgur fyrir sjálfum sér og öðrum. Sagan er vissulega margræð og unnt að leggja út frá henni á mismunandi vegu. Líklegt er að einstaka lesendur geri einmitt það, hver og einn út frá sínu afmarkaða sjónarhorni.

Mér hugnast stílinn á bókinni sérleg vel. Um leið og hann er einfaldur, tær og blátt áfram er hann fullur af næmni og skáldlegri andagift og léttri kímni þegar það á við. Og svo er hann alveg laus við þreytandi orðskrúð, óðamæli og tilgerðarlega upphafningu sem einkennir suma höfunda.

Vel gerð og áhugaverð skáldsaga sem skrifuð er af ríku innsæi og næmni.
Profile Image for Sara Hlín.
466 reviews
December 15, 2022
Besta bók ársins! Ahhh hvað þessi gladdi mig. Allskonar til að
brjóta heilann um eins og Guðrún Eva gerir svo vel. Fylgjumst með Sigurlilju sem er sérstök manneskja með einstakan hæfileika til að sjá inn í líf fólks en þannig fléttast allskonar örsögur frá lífi annarra inn í bókina og maður algjörlega gleymir sér í þeirra lífsins vandamálum en dettur svo aftur inn í stóra söguþráð bókarinnar. Heppnast virkilega vel.
Profile Image for Katla Lárusdóttir.
357 reviews1 follower
January 24, 2023
Ofboðslega flott hvernig Guðrún Eva fléttar sögur inn í aðal söguna og flytur lesanda, áreynslulaust, á milli heima. Enn ein bókaperlan í safn höfundar. Vel gert.
7 reviews
May 1, 2023
3,5
Var of lengi með þessa og var svolítið að detta út og tapa þræðinum - en annars bara fín og skemmtilega skrifuð og allt það
Profile Image for Brynhildur Þórarinsdóttir.
26 reviews
December 29, 2022
Þessi bók einhver veginn heldur í hendina á manni þegar maður er að lesa hana; björt, róleg og trygg. Það er yndislegur einfaldleiki í frásögninni, samtímis sem sagan er svo djúp og margslungin. Takk Guðrún Eva, bækurnar þínar eru alltaf gjöf.
Profile Image for Hulda.
230 reviews5 followers
August 13, 2023
Eva bregst mér ekki. Ég bara elska bækurnar hennar. Þær eru svo einlægar og lausar við tilgerð, eins og þessi hér. Bókin er líka svo fallega skrifuð. Ég dáðist hreinlega af heilmörgum málsgreinum og staldraði oft við til að njóta þeirra lengur. Sagan má í rauninni segja að sé samansafn smásagna sem eru draumarnir Lilju, en saga Lilju er sú sem tengir allar þessar sögur saman. Mér fannst það listavel gert hjá Evu og ég kann virkilega vel við þetta form. Mér finnst alveg merkilegt hvernig hún fór að því að gera alla draumana svo ótrúlega áhugaverða að ég saknaði hvers og eins þeirra um leið og hann var búinn, alveg eins og Lilja, og þannig fannst mér Eva fanga þetta limbó hennar milli "heima" svo vel. Saga Lilju var virkilega áhugaverð og skemmtileg og ég velti því lengi fyrir mér hvert Eva ætlaði sér að fara með söguna, því ég var alls ekki viss. Endirinn fórst henni afsaklega vel úr hendi og að ég held á þann hátt sem ætti að fullnægja flestum lesendum. Að minnsta kosti var ég afar ánægð. Takk fyrir mig!
Profile Image for Berglind Steinsdóttir.
68 reviews2 followers
Read
December 26, 2022
Ég er mjög tvístígandi. Kannski las ég hana of hratt. Ég skil Sigurlilju og þá erfiðleiku sem hún upplifir við það að sjá oft heiminn með augum annars fólks, bókstaflega. En færslan yfir í þá sýn er að jafnaði of óljós - í mínum augum.
Sagan af Teresu og hennar raunum og lífshlaupi er hrífandi og það púsluspil þéttist vel og greiðlega alla bókina. Ég skil, en samt ekki, að einhver velji að búa úti í rassgatarófu og komast ekki spönn frá rassi nema t.d. með því að fá Stanislav til að skutla sér á Vopnafjörð. Við sem veljum að búa í Reykjavík erum auðvitað úti í rassgatarófu miðað við meginland Evrópu og ég skil vel að aðrir Evrópubúar eigi erfitt með að skilja þetta val. En römm er sú taug er rekka dregur föðurtúna til - við fáum ekki endilega við það ráðið.
Profile Image for Einar Jóhann.
315 reviews12 followers
March 9, 2023
Guðrún Eva er í stuði. Áður en mér gafst kostur á að byrja á Útsýni gluggaði ég ég Albúm og las fyrsta þriðjunginn í henni. Tilfærslan úr Albúmi og í þessa hjalpaði mér enn betur að koma auga á hvað stíllinn hennar er orðinn slípaður og silkimjúkur.
Að Auði Övu og Jóni Kalmani undanskildum hefur Guðrún Eva eina mest einkennandi rödd hjá skrifandi skáldi í dag. Mér finnst ég heyra hana raula þessa frásögn sjálf þegar ég les bækur hennar.
Í sögunni er unnið með raunverulegar draumsýnir söguhetjunnar og "ekki er allt sem sýnist" eins og mig minnir að standi á bókarkápunni eða í einhverju kynningarefni. Það concept greip mig ekki í upphafi, það var ekki fyrr en í seinni helming bókarinnar sem ég leyfði því þema að taka yfir frásögnina. Þegar þangað var komið tók við falleg og góð saga.
Profile Image for Arni Snaevarr.
55 reviews1 follower
January 10, 2023
Guðrún Eva er frábær penni og textinn rennur ljúflega. En það sem meira er hugmyndin er brilljant. Mjög góð bók sem hefði orðið frábær með meiri yfirlegu, eða jafnvel ritstjórn. Skemmti mér vel yfir lestrinum. Eiginlega ætti þetta að vera þrjár og hálf stjarna - maður fer ekki í fjórar eins og hver annar Mogga-gagnrýnandi á sterum :)
Profile Image for Heida Eiriks.
25 reviews2 followers
December 17, 2025
Ég var að klára þessa. Mér finnst eins og í hvert sinn sem ég les eitthvað eftir Guðrúnu Evu sé það besta bók sem ég hef lesið eftir hana, en í þetta sinn er ég samt eiginlega viss um að þetta sé BESTA bókin hennar. Þetta er allavega mín uppáhalds. Hún er rosalega heimspekileg og fyrirbærafræðileg. Hvað eru sjónarhorn mannsins mörg?
Profile Image for Árni Friðriksson.
24 reviews1 follower
January 6, 2023
Las síðasta hlutann af þessari bók mjög hægt. Og ég les yfirleitt hægt, þannig að ég las hann í alvöru mjög hægt. Mjög góð.
Profile Image for Kitta Pálsdóttir.
237 reviews3 followers
January 8, 2023
Fyrri hlutinn mun betri en sá seinni. Of mikið flakk, fram og til baka - yfirleitt kann ég þó að meta slíkt í sögum....
This entire review has been hidden because of spoilers.
Profile Image for Thorunn.
450 reviews
June 4, 2023
Skemmtileg saga og frumleg uppbygging. En hver pælingin var er mér frekar hulin ráðgáta.
Profile Image for Guðrún Lilja.
16 reviews1 follower
May 22, 2024
Smá spes, en góð, byrjaði mjög vel og spennandi, en það þynntist aðeins út. Þyrfti kannski að lesa aftur til að skilja
Profile Image for Margrét Birgisdóttir.
42 reviews1 follower
December 31, 2025
Frábær skrif og skemmtilegur lestur. En það vantaði eitthvað, einhverja úrlausn kannski eða útskýringu. Bókin hefði mátt vera helmingi lengri, mig langaði að lesa meira og vita meira.
Displaying 1 - 19 of 19 reviews

Can't find what you're looking for?

Get help and learn more about the design.