Jump to ratings and reviews
Rate this book

Tól

Rate this book
Kvikmyndagerðarkonan Villa Dúadóttir situr fyrir svörum á heimildamyndahátíð í Stokkhólmi en spurningarnar vefjast fyrir henni. Nákvæmlega hvernig tengdist hún hvalveiðimanninum Dimma, sem myndin hennar fjallar um? Hvers vegna vildi hún segja sögu hans? Er yfirleitt viðeigandi að hún geri það? Og hvað með Amalíu, sem hún klippti út úr myndinni?

Líkt og í fyrri verkum Kristínar Eiríksdóttur virðist allt blasa við en ekkert er sem sýnist. Frásögnin heldur lesandanum föngnum, nærgætin og miskunnarlaus í senn.

349 pages, Hardcover

First published January 1, 2022

30 people are currently reading
370 people want to read

About the author

Kristín Eiríksdóttir

18 books94 followers
KRISTIN EIRIKSDOTTIR (b.1981) made her mark on the literary scene in a big way with her collection of short stories, Doris Dies in 2010.
Critics agreed that a new, fully-fledged author had arrived with one of the most significant works of fiction of the year.
Her voice is strong and importunate – one of the most original of her generation.

Ratings & Reviews

What do you think?
Rate this book

Friends & Following

Create a free account to discover what your friends think of this book!

Community Reviews

5 stars
190 (43%)
4 stars
195 (44%)
3 stars
42 (9%)
2 stars
2 (<1%)
1 star
5 (1%)
Displaying 1 - 30 of 50 reviews
Profile Image for Meike.
Author 1 book5,119 followers
January 30, 2026
Eiríksdóttir's novel could rightfully be described as a text about intergenerational trauma and the cycle of addiction and neglect, but it's just as much a hopeful book about how people survive by sticking together, by standing by each other. Our main character is director Villa whom we meet at a festival where she presents her documentary about a whaler named Dimmi, a convicted criminal addicted to substances. After the screening, she answers questions about her work, and at first, the discussion focuses on media- and narration-related topics: Who is allowed to tell whose story? To what extent are documentaries fiction, and what is permissible when selecting focal points? Are we allowed to feel empathy for perpetrators? Can the suffering of animals in the film serve as a metaphor for the suffering of humans (hello, Moby-Dick or, The Whale)?

But then, we dive into Villa's life in numerous flashbacks—the novel, like a film, is a montage. Villa struggles with her own history of addiction, she has known Dimmi the whaler since childhood (we quickly learn that when the novel starts, he is already deceased). Her story arc that illuminates a familial cycle of trauma that is the focus of parts one and four of the text, both told from her perspective. Part two gives the spotlight to Jón Logi, a recovering alcoholic and social worker who is also the father of Villa's child, part three talks about Ninja, the camera operator for the documentary, and slowly, it is revealed how these characters are connected to each other as well as to the main themes of the novel.

The central riddles that render the story so exciting are, first, did the documentary portray Dimmi, the whaler and violent criminal, too positively, and did Villa allow herself to be manipulated by him? What actually is Dimmi's sad family history that the film reveals? And second, can Villa, Ninja, and Jón Logi break the cycle of neglect for their children? The author employs a sober narrative voice, there is no melodrama, and the narrative montage is very cleverly edited and thus remains intriguing right up to the very end (even if I really didn't need the final twist). The characters are psychologically plausible, and in between, the story vividly discusses everyday violence against women. The whole mixture is sometimes a little too ambitious for its own good, taking too many detours and bringing up a few unnecessary extra angles, but better too ambitious than too tame.

An intelligent page turner that finds connections between media representation, moral judgement, and ways to break destructive cycles - loved it.

You can listen to the podcast crew discuss the novel (in German) here: https://papierstaupodcast.de/podcast/...
Profile Image for Þorvaldur Sigurbjörn Helgason.
Author 9 books65 followers
Read
December 28, 2022
Fyrsta viðbragð er að gleypa bókina í sig í einum rykk en Tól er bók sem maður þarf að loka reglulega til að melta það sem á undan er gengið og leyfa sögunni að seytla inn í sig. Stína er sannkölluð töfrakona með orð og Tól er ein af hennar allra bestu, bók sem opnar gátt inn í dýpstu kviku mannssálarinnar.
Profile Image for Villi Neto.
41 reviews75 followers
September 28, 2024
Ég er greinilega maður sem fílar bækurnar hennar Kristínu. Fannst smá leiðinlegt að ég fattaði þegar ég var ca. hálfnaður að ég var frekar illa fyrir kallaður í þessa bók en vildi samt klára hana… ætli það segi ekki heilmikið um bókina.
Fannst allra áhugaverðast að lesa um Villu, hinir fínir líka, en ég hafði alveg sterkan áhuga á allt sem Villa hafði að segja.
Eins og venjulega þá flaug ég í gegnum síðustu 50 blaðsíðurnar, þær náðu mér alveg.
Profile Image for Viktoría Blöndal.
Author 2 books7 followers
November 23, 2022
Það ætti engin að fá að tjá sig um mannskepnuna nema lýsa henni álíka og Kristín gerir.
Nú hætta kennarar að láta börn og unglinga lesa Sölku Völku eða Engla alheimsins og skyldulesning verður að lesa Tól.
Margslungin, himnaríki ig helvíti! Við erum aldrei bara eitthvað eitt - við erum allt og meira
Profile Image for Guðrún Úlfarsdóttir.
171 reviews5 followers
Read
January 9, 2023
Þessi bók var eins og gluggi, þar sem ég gat fylgst með persónunum ljóslifandi handan glersins. Töfragluggi sem gat spólað til baka, séð áföll og atburði fortíðar. Ég gat horft á þau eins og alvöru fólk - eins og þau væru ekki skáldskapur.
Profile Image for Tinna Kjartansdóttir.
35 reviews
February 27, 2023
Þessi var góð! Svo rosalega margt í henni og miklu meira en rúmast í einni samantekt. Gaman að lesa svoleiðis bók.
Profile Image for Einar Jóhann.
316 reviews12 followers
December 8, 2022
4,5. Töfrar í pennanum og sagan rennur áfram, mikil spenna, það er eitthvað sem grípur lesandann strax í upphafi og sleppir ekki takinu. Get sagt fullum fetum að Tól standi Hvítfeld og Elínu framar.
Profile Image for David Karlsson.
504 reviews39 followers
April 25, 2025
När jag läste "Elin, diverse" av Eiríksdóttir för ett tag sedan var jag inte fullt ut övertygad av berättelsen, men däremot av hennes förmåga att skriva. Det var en bok som var svår att lägga ifrån sig och så är fallet även denna gång; trots att den hoppar mellan tidsplan och personer (eller kanske just tack var det?) blir jag aldrig uttråkad utan vill hela tiden framåt.

Det är en skickligt komponerad berättelse som till en början handlar om dokumentärfilmaren Villa som gjort en film om en valfångstman och åkt till Sverige för att visa upp den på filmfestival. Korta sekvenser från den intervju hon gör med en av arrangörerna efter visningen varvas med filmens tillkomst, men ganska snabbt försvåras bilden. Dels för att valfångstmannen Dimmi i första hand visar sig vara något helt annat, dels för att Villa själv har brottats med svåra personliga problem och har en historia som hänger ihop med Dimmi.

Teman som återkommer genom boken är missbruk, trasiga relationer mellan barn och föräldar samt sjukdom. Bitvis blir det en resa ner i avgrunden och det finns kopplingar till en annan bok som Flo förlag har gett ut, nämligen "Heroin chic". Men här blir missbruk och medberoende bara en av flera trådar som vävs ihop till en mycket bredare väv som fängslar hela vägen från start till mål.
Profile Image for Thorunn.
453 reviews
January 9, 2023
Virkilega góð saga, mér fannst hún mun betri en Elín, ýmislegt – sem ég varð reyndar fyrir miklum vonbrigðum með og ætlaði því varla að nenna að lesa þessa bók.
Þessi saga myndar mjög góða heild og persónurnar eru djúpar og flóknar, enginn er bara góður eða vondur, allir eiga sína miserfiðu sögu.
Mér fannst lýsingar barnanna á brothættu lífi foreldranna trúverðugar sem og upplifanir þeirra á höfnuninni sem þau urðu fyrir upp til hópa. Fólk er bara flókið og enginn er eins.
Nafnið á bókinni er líka skemmtilega margrætt – hver og hvað er tól og hvenær og hvernig er því beitt.
Profile Image for María Einarsdóttir.
52 reviews4 followers
January 4, 2023
Það stórkostlega við Kristínu Eiríks, sem er kannski enn skýrara í Tól en í öðrum bókum eftir hana, er að það eins og flæða úr henni karakterar, senur og sögur sem eru á sama tíma svo sönn og svo ævintýraleg. Hún tvinnar saman atburðarásir sem eru svo stórkostlegar að auðvitað myndi þetta ekki gerast svona í raunveruleikanum, en samt miðla þær tilfinningum sem eru svo sannar og mannlegar að ekkert virðist meira satt eða raunverulegt. Allt þetta flæðir frá Kristínu yfir á blaðsíðurnar og ég rykkist með í flóðinu og þeytist í gegnum hjartnæmt heimildaverk um kvikmyndagerð, menningarsenuna, neyslu, áföll, fullorðnun og fjölskyldur. Mæli með fyrir alla sem fíla að lesa góðar bækur :)
Profile Image for Magnús Jochum Pálsson.
281 reviews11 followers
July 3, 2023
Saga baksagna þar sem áföll, fíkn og fíknisjúkdómar, sambönd barna við foreldra, tengslaraskanir og tengsl eru krufin og dregin saman til að búa til þrívíðar myndir af misbrotnu fólki.

Ansi löng en heldur manni samt helvíti vel. Margir rafmagnaðir kaflar og senur - það er einn sem sýnir senur úr heimildamynd sem er algjörlega magnaður.

Veit ekki hvort þetta er meistaraverk Kristínar sem fólkið hefur beðið eftir eða hvort þetta toppi Elín, ýmislegt. Þarf eiginlega að lesa hana aftur. Gef þessu samt fullt hús stiga.
Profile Image for Arndís María.
41 reviews2 followers
May 28, 2023
Bjóst ekki við því að þessi bók væri eins og hún er en hún var frábæææær!
Profile Image for Bryndís.
6 reviews1 follower
July 11, 2023
Ríghélt athyglinni allan tímann, flæddi vel.
Profile Image for Vala Run.
74 reviews4 followers
January 16, 2023
var að búast við miklu eftir hype, stóðst það mögulega ekki alveg en samt sem áður mjög góð bók. hélt mér við efnið allan tímann, náði að umbreyta skoðun manns á karakterum frá byrjun og í lokin. væri geggjuð sem bíómynd, en það vantar kannski ekki íslenskar bíómyndir um neyslu og fíkla 🫠
Profile Image for Berglind Steinsdóttir.
68 reviews2 followers
Read
July 3, 2023
Ótrúleg tímasetning, ég byrjaði að lesa hana daginn eftir hitafundinn á Akranesi vegna ekki-hvalveiðanna og bókin er um hvalveiðimann sem er ógæfumaður og svo ógæfusaman kvikmyndagerðarmann sem gerir heimildamynd um hvalveiðimanninn.

Þarna fléttast saman margar ógæfusögur og margt áhugavert sagt frá sjónarhorni þriggja sögupersóna. Ég veit ekki á hvað það skrifast en ég átti erfitt með að lesa lengi í einu þangað til í dag þegar ég kláraði síðustu 200 síðurnar liggjandi í sólinni á svölunum.

En þrátt fyrir margt áhugavert, svo ég segi það aftur, situr núna mest í mér pirringur yfir því hvernig AA er mært. Ég þekki bara einn mjög óvirkan alkóhólista, bróður minn, hinn mikla sjálfsástarmann og aðdáanda AA, og ég held að AA geri of mikið af því að tala upp egóið í alkóhólistum. Sumir ráða sjálfsagt við það en þessi sem ég þekki til margra áratuga er ónýt manneskja og hefur ekki einu sinni drukkið áfengi í rúm 30 ár. Honum finnst hann hins vegar eiga allt skilið frá öllum af því að hann hefur ekki fallið. Ég mætti á nokkra fundi fyrir fullorðna aðstandendur alkóhólista og mér ofbauð talsmátinn.

Endilega leiðréttið ef þið vitið til þess að AA vinni almennt gott starf.
Profile Image for Karl Hallbjörnsson.
677 reviews73 followers
February 2, 2023
Þristur til fjarki þessi. Fannst þetta virkilega ríkuleg persónutapestría sem er hægt að liggja í og rýna að því svo er virðist hartnær endalaust, ótrúlega flott detail work og einstaklega trúverðug mynd sem er máluð upp af íslensku samfélagi. Kristín neglir einhverjar einstakar áferðir á sinn einstaka máta. Mér fannst hún vinna betur með áföll en í fyrri bókum, en þau eru enn stór hluti af frásögn og persónusköpun – fannst sem hún gerði betur í því að mála upp allan skalann af áföllum. Aftur á móti fannst mér verkið ögn endasleppt, eins og það hefði ekki gefist tími til að klára það fyrir útgáfu, og að sama skapi fannst mér söguþráðurinn oft eiga það til að líða fyrir baksögulýsingar og persónusköpun. Mig vantar einhver svör við „og hvað svo?“ spurningunum sem vöknuðu upp – mér fannst eins og það væri ekki nógu mikil saga, og of mikil baksaga. Á heildina litið þó alveg virkilega flott og íburðarmikið verk.
Profile Image for bolli.
36 reviews7 followers
July 2, 2023
Vandaður texti og glöggar mannlýsingar. Áhugaverðir vinklar á fíkn og vanvirkar fjölskyldur á öllum stigum samfélagsins.

Söguþráðurinn í kringum Dimitri og heimildarmyndina í fyrsta hluta bókarinnar greip mig strax en svo fór mér að leiðast aðeins þegar trámadömp allra persónanna hófst.

Sagan var ekki alveg nógu sterk til að bera svona mikla baksögu og í miðri bók var ég hálfpartinn að bíða eftir því að henni viki aftur að Villu og Dimitri.

Þegar maður fær loksins að vita eitthvað meira um móður Dimitris og bakgrunn hans þá er bókin allt í einu búin og maður situr bara uppi með áfallasögu aukapersónanna.
Profile Image for Sara Hlín.
470 reviews
November 4, 2023
Skil ekki hvernig þessi fór framhjá mér í jólabókaflóðinu í fyrra en sem betur fer rataði hún í mínar hendur að lokum. Saga flestra persónanna er átakanleg. Villa sem glímir við alvarlegan fíknivanda gerir heimildarmynd um Dimma sem starfar sem hvalveiðimaður. Dimmi er dökkur persónuleiki en nær samt að heilla mann á undarlegan hátt enda fáum við að skyggnast inn í fortíð hans og áttum okkur á að yfirleitt er ástæða á bak við hvers vegna fólk er eins og það er. Við fáum innsýn í hvalveiðar, störf barnaverndar, lífið á Vogi og í kjöllurum borgarinnar. Naut hverrar blaðsíðu.
Displaying 1 - 30 of 50 reviews

Can't find what you're looking for?

Get help and learn more about the design.