Jump to ratings and reviews
Rate this book

Baneitrað samband á Njálsgötunni

Rate this book
„Ja, undir einhverjum áhrifum er hann,“ þrefaði lögginn.
„KONNráð,“ gaggaði kellingin, „hefurðu verið að ÞEFA af SOKKUNUM þínum?“
„Nei, ég er hættur því eins og ég lofaði,“ tautaði ég.
„Herra lögregluþjónn,“ sagði mamma við hann í trúnaðartón, „ég hélt hann væri heima hjá prestssyninum að lita í litabókina sína.“
Ég starði á þá gömlu. Með hverjum hélt hún eiginlega? MÉR?

Mætir Konráð skilningi hjá móður sinni? Nei. Hann finnur það nú bara bezt þegar hún rífur græjurnar hans úr sambandi á næturnar.

Svo hittir Konráð huggulega stelpu úr Hafnarfirði. En skánar lífið við það? Nei, því Lillu finnst ólíklegt að heimsendir komi fyrir jól og svo heldur mamma hans að Landleiðir gefi henni gulúr fyrir það eitt að fjármagna Konráð í strætó.

Heimurinn stendur sameinaður gegn Konráði, meira að segja löggan fer með hann heim, alsaklausan, grunaðan um ölvun á Hallærisplaninu.

125 pages

First published January 1, 1985

Loading...
Loading...

About the author

Auður Haralds

12 books15 followers
Auður Haralds er íslenskur rithöfundur. Fyrsta skáldsaga hennar, Hvunndagshetjan: þrjár öruggar aðferðir til að eignast óskilgetin börn árið 1979, vakti mikla athygli sem opinská grátbrosleg lýsing á hlutskipti kvenna við upphaf ákveðins kafla í kvennabaráttu á Íslandi. Hún fylgdi henni eftir með Læknamafían árið 1980 og Hlustið þér á Mozart? 1982. Skömmu síðar komu út þrjár bækur hennar um Elías sem byggðu á innslögum sem hún skrifaði fyrir Stundina okkar, sem Sigurður Sigurjónsson lék, og unglingabókin Baneitrað samband á Njálsgötunni. 1987 kom svo út síðasta skáldsaga hennar til þessa, Ung, há, feig og ljóshærð.

Ratings & Reviews

What do you think?
Rate this book

Friends & Following

Create a free account to discover what your friends think of this book!

Community Reviews

5 stars
62 (47%)
4 stars
48 (36%)
3 stars
20 (15%)
2 stars
0 (0%)
1 star
0 (0%)
Displaying 1 - 16 of 16 reviews
Profile Image for Sóley Reynisdóttir.
168 reviews12 followers
April 30, 2025
Ofboðslega fyndin saga um samband drengs og móður í skugga kalda stríðsins. Endalausu þráhyggjur Konráðs fyrir heimsendinum voru svo melódramatískar þegar enginn tók undir þær og stríðsyfirlýsing móðurinnar tóku mig alveg út. Flissaði út í eitt að hlusta á lestur Sigurðs Þórs, sem var einstaklega frábær. Með betri bókum sem ég hef lesið í ár.
Profile Image for Agnes Marí.
10 reviews1 follower
November 17, 2025
Skemmtilegt og fyndin. Sterkir karakterar og áhugarverð stemmning
10 reviews
June 29, 2024
Must að hlusta á þessa í (leik)lestri Sigurðar Þórs á Storytel, frábær lestur á frábærri bók! Flissaði mjög oft því hún er mjög skemmtileg.
Profile Image for Hólmfríður Árnadóttir.
35 reviews3 followers
January 27, 2024
Alveg frábær lesning, nostalgían yfirþyrmandi og svo fyndin og skemmtileg. Ekki ein feilnóta (þó Konráð hafi ekki sett á sig handáburð).
256 reviews2 followers
August 26, 2021
Alger snilld, afar fyndin út í gegn og rifjar upp æskuárin í skugga kjarnorkuvopna kapphlaupsins.
Profile Image for Sigurlaug Lára.
4 reviews1 follower
January 6, 2024
Stórkostleg ❤️ ein allra besta og skemmtilegasta bók sem ég hef lesið
46 reviews
August 27, 2025
Ég held svei mér þá að þetta sé skemmtilegasta bók Auðar sem ég hef lesið hingað til. Ég hló upphátt oftar en einu sinni og oftar en fimm sinnum.
Mæli mjög með hljóðbókinni! Hún er alveg frábær
Profile Image for Signý Yrsa.
38 reviews1 follower
April 27, 2026
Þessi bók er algjör snilld! Brjálæðislega fyndin og upplestur á Storytel frábær.
Profile Image for Asta.
88 reviews4 followers
September 22, 2019
Var að lesa þessa í líklega þriðja sinn, enn jafn frábær.
Displaying 1 - 16 of 16 reviews