Heimildaskáldsaga frá fyrstu árum 20. aldar. Læknishjón eru nýflutt að norðan. Í Reykjavík geisar mikið fár yfir hinni nýju stefnu, spíritismanum. Bærinn er klofinn, jafnt í afstöðu sinni til sjálfstæðismála sem spíritisma, þar sem vísindi og trú eiga að fallast í faðma. Læknirinn er krafinn svara um hin dularfullu fyrirbrigði á miðilsfundum.
Reykjavík á fyrstu árum tuttugustu aldar. Læknishjónin eru nýflutt norðan af Akureyri. Í höfuðstaðnum geisar mikið fár yfir hinni nýju stefnu, spíritismanum. Á andafundum er ungur maður sem þykir sýna fádæma miðilshæfileika, svo magnaða að slíkt hafi hvergi sést í víðri veröld. Um hann er stofnað félag.
Hin nýja borgarastétt er klofin, jafnt í afstöðu sinni til spíritismans, þar sem vísindi og trú eiga að fallast í faðma, sem og í skoðunum á sambandi Íslands við Danmörku. Til læknishjónanna koma helstu forkólfar andatrúarstefnunnar og vilja fá einhvern sem ekki trúir til að rannsaka vísindalega þau dularfullu fyrirbrigði sem verða á miðilsfundum. Skáldsagan Millibilsmaður er fimmtánda skáldverk Hermanns Stefánssonar og er að hluta byggð á heimildum.
Firnaskemmtileg lesning. Höfundi tekst á mjög sannfærandi máta með lyginni einni saman að flytja lesendur aftur til aldamótanna 1900. Það er sérstaklega gaman að stafsetningu verksins sem verður mjög sannfærandi útgáfa á tilbrigðaríkri stafsetningu fyrri tíma. Það má samt velta því fyrir sér hvort að síðasta hluta bókarinnar hefði ekki bara mátt sleppa því hann var heldur slappari en aðrir hlutar.