Kona hverfur sporlaust og óvenju umfangsmikilli lögreglurannsókn er strax hrundið af stað. Um er að ræða einstæða tveggja barna móður – og einn færasta kerfisfræðing landsins. Á ýmsu hefur gengið í einkalífi hennar en talsverð leynd virðist hvíla yfir starfi hennar síðustu mánuðina áður en hún hvarf. Fyrr en varir teygir rannsóknin anga sína á bak við tjöldin í stjórnsýslunni, inn í leðurklædd skúmaskot viðskiptalífsins og napran veruleika hinna verst settu í samfélaginu.
Ævar Örn is an Icelandic crime writer. He grew up in Garðarær, the Reykjavík suburb, Hafnarfjörður and the countryside close to Akranes. He studied Journalism, Politics and Philosophy at the University of Stirling for a year, and later obtained a degree in Philosophy and English Literature from Albert-Ludwigs University in Frieberg. Aævar Örn has worked on fishing boats, in television and radio, as a journalist and translator, as well as writing his novels.
Ung tveggja barna móðir hverfur og um leið fer Árni að rannsaka bíl sem er búið að lykla hjá einhverjum forstjóra. Þessi mál tengjast svo og ýmsar samsæriskenningar komast á kreik. Ágætlega raunveruleg og vel skrifuð saga. Var búinn að lesa þessa bók áður fyrir löngu síðan og svo var einnig gerð bíómynd með sama nafni en var tvinnuð saman úr tveimur bókum eftir Ævar (minnir mig). Aldrei spennandi en vekur áhuga og ágætar persónur.