Með þessari bók kveður Hermann sér hljóðs með gjörólíkum hætti, sem ljóðskáld þokunnar, en baksvið ljóðanna er borgin Santiago de Compostela á Spáni. Ljóðin draga upp landakort af borg, ljóðmælandi lýsir því sem fyrir ber hið ytra sem innra. Bókin er prýdd fjölda ljósmynda sem í samspili við ljóðin varpa fram viðkvæmnislegum áhrifasýnum af goðsagnaborg sem þokan hylur. Hér er á ferð óvenjuleg ljóðabók sem slær nýjan og framandlegan tón í íslenskri ljóðlist. Skyldueign ljóðaunnandans.