Jump to ratings and reviews
Rate this book

Jóel #2

Undir 4 augu

Rate this book
Undir 4 augu er saga um fjórtán ára ungmenni sem eru bundin tryggðaböndum en eiga erfitt með að fóta sig á hálu svelli unglingsáranna. Jóel fórnar landsliðinu til að geta heimsótt föður sinn í Kína þar sem hann lendir í miklum ævintýrum og lífsháska. Álfhildur og Tommi stinga saman nefjum á Akureyri og Tinna er send í skyndi til London. Vinirnir þrá nærveru hver annars en margt fer öðruvísi en ætlað er.

188 pages

First published January 1, 2004

Loading...
Loading...

About the author

Þorgrímur Þráinsson

31 books13 followers
Þorgrímur Þráinsson er fæddur í Reykjavík 8. janúar 1959. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1980 og stundaði nám í frönsku við Sorbonne háskóla í París 1983-1984. Hann var blaðamaður hjá Fróða frá 1985 og ritstjóri Íþróttablaðsins og ritstjórnarfulltrúi barnablaðsins ABC frá 1989. Í lok árs 1996 var hann ráðinn framkvæmdastjóri Tóbaksvarnanefndar. Þorgrímur lék með meistaraflokki Vals í knattspyrnu frá 1979 til 1990 og gegndi fyrirliðastöðunni síðustu fimm tímabilin. Áður lék hann með Víkingi frá Ólafsvík. Hann varð þrisvar sinnum Íslandsmeistari á knattspyrnuferlinum með Val og tvisvar sinnum bikarmeistari. Þorgrímur lék alls um 180 leiki í efstu deild og 17 landsleiki fyrir Íslands hönd. Þá varð hann bikarmeistari í frjálsíþróttum með FH árið 1988 en hann keppti í spjótkasti.

Þorgrímur hefur skrifað fjölda bóka fyrir börn og unglinga og var fyrsta bók hans, Með fiðring í tánum (1989), metsölubók á sínum tíma. Hann hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin 1997 fyrir bókina Margt býr í myrkrinu og aftur árið 2010 fyrir bókina Ertu Guð, afi?. Fyrsta skáldsaga hans fyrir fullorðna, Allt hold er hey, kom út 2004.

Þorgrímur Þráinsson býr í Reykjavík

Ratings & Reviews

What do you think?
Rate this book

Friends & Following

Create a free account to discover what your friends think of this book!

Community Reviews

5 stars
7 (22%)
4 stars
8 (25%)
3 stars
10 (32%)
2 stars
6 (19%)
1 star
0 (0%)
No one has reviewed this book yet.