Aðalpersónan í Dyr standa opnar er ungur Reykjavíkingur, sem fer á síld á sumrin, en kemur suður á haustin og stundar það, sem hendi er næst. Hann umgengst sundurleitar persónur, sjónhverfingamann, ungan og efnilegan iðnaðarmann, unga konu, sem hefur lokað sig inni yfir geðbiluðum eiginmanni, og gleðikonu að ógleymdum Jósef skólameistara og Stellu Klöru, drykkjuhjúum, furðulegum í háttum og orðatiltækjum.