Goodreads helps you follow your favorite authors. Be the first to learn about new releases!
Start by following Sigurður Pálsson.

Sigurður Pálsson Sigurður Pálsson > Quotes

 

 (?)
Quotes are added by the Goodreads community and are not verified by Goodreads. (Learn more)
Showing 1-9 of 9
“Skáldskapur er að mínu viti ekki uppspuni, hvað þá lygar, skáldskapur er ofsafengin leit að sannleikanum.”
― Sigurður Pálsson, Bernskubók
“Ég man ekki til þess að þau hafi kvartað enda snerist á fóninum plata Rolling Stones, Let it bleed, með laginu You can’t always get what you want, lagið þar sem London Bach kórinn syngur undir eins og englaherdeild.”
― Sigurður Pálsson, Minnisbók
“Ég var aleinn á Götu Meistara Alberts. Var einn daginn á gangi þarna í grenndinni eftir götu heilags Jakobs, rue Saint-Jacques. Gatan liggur frá Notre Dame áleiðis niður í fjórtánda hverfi og svo áfram suður; þetta er fyrsti spottinn á pílagrímaleiðinni til Santiago de Compostela á Spáni og þess vegna heitir gatan í höfuðið á sankti Jakobi, Santiago.”
― Sigurður Pálsson, Minnisbók
“En kannski var aðalatriðið persónulegt andóf og uppreisn gegn ákveðnum kröfum sem dundu stöðugt á manni, gegn þessari skipun frelsisgúrúa um að reykja hass, taka inn allan fjandann, allt þetta trúboð fór fljótlega ofsalega í taugarnar á mér. Þetta var þrýstingur, nauðung. Yfirráðafíkn frelsisklerkanna, sárþjáðra af löngun til að ráðskast með mann, fannst mér óþolandi. Ég snerist gegn þeim sem alltaf reyndu að hafa vit fyrir öllu og öllum. Reyndi að óhlýðnast eins og ég mögulega gat.”
― Sigurður Pálsson, Minnisbók
“Það sljákkaði eiginlega strax í upphlaupsmönnum og Sartre byrjaði að tala með sinni málmkenndu reykingarödd, í raun lítt áheyrilegri, eiginlega ljótri, en samt alveg óskiljanlega sjarmerandi eins og reyndar persónuleiki mannsins sjálfs. Mig rámar í stutta heimspekilega greinargerð fyrir kringumstæðunum en meginatriðið í ávarpi fílósófsins var í stuttu máli stuðningur og hvatning til stúdenta að rísa upp, taka tilvist sína í eigin hendur, taka ábyrgð á tilveru sinni. Samanber fyrsta lögmál tilvistarstefnunnar: „Maðurinn er ekkert annað en það sem hann gerir úr sér.”
― Sigurður Pálsson, Minnisbók
“NOKKRAR VERKLEGAR ÆFINGAR Í ATBURÐASKÁLDSKAP 1. Fara inn í Reykjavíkur Apótek og biðja um venjulega herraklippingu. Leggja áherslu á að hún eigi bara að vera venjuleg ef bið verður á þjónustu. 2. Fara inn á Aðalpósthúsið í Reykjavík og biðja um tveggja manna herbergi með baði. Taka fram að það þurfi hins vegar ekki að vera með síma. Verða undrandi að skuli ekki vera bað á herbergjunum ef afgreiðslustúlkan segist ekki hafa nein herbergi. 3. Ganga inn um aðaldyr Alþingis og biðja þingvörð mjög kurteislega að fá að tala við Lilla klifurmús. Ef þingvörðurinn kannast ekki við neinn með því nafni á að spyrja hann hvort hann sé nýbyrjaður. 4. Fara inn á Hótel Borg og fá sér sæti í veitingasalnum. Biðja um réttlæti þegar þjónninn kemur. Ef þjónninn segist ekki vera með neitt þess háttar á að benda á myndina af Jóhannesi Jósefssyni og skora á þjóninn að taka eina glímu. Þegar lögreglan kemur á að veifa Ljóð námu völd eftir Sigurð Pálsson til sönnunar því að allt sé þetta samkvæmt bókinni.”
― Sigurður Pálsson, Minnisbók
“Húsið var frá upphafsárum Cité Universitaire skömmu eftir fyrri heimsstyrjöldina. Það arma stríð varð til þess að alþjóðlega garðahverfið var stofnsett. Þetta var sem sagt hugsjónastarfsemi í upphafi: að leyfa ungu námsfólki allra landa að umgangast til þess að stuðla að friði milli þjóðanna. Þarna voru því byggðir rúmlega fjörutíu garðar, sumir tengdir ákveðinni þjóð, sumir þeim hugsjónamönnum sem komu þessu gríðarmikla verki af stað, sumir helgaðir ákveðnum námsgreinum, svo sem eins og Landbúnaðargarðurinn. Le Corbusier, hinn heimsþekkti svissneski arkitekt, teiknaði tvö af þessum húsum.”
― Sigurður Pálsson, Minnisbók
“INNBYRÐIS DEILUR HÖFÐU FARIÐ HARÐNANDI Í YSTA VINSTRINU, sem var flókið svæði, það var fjarri því að það skiptist bara í trotskíista, marx-lenínista, anarkista og kommúnista, deildaskiptingin var heldur betur flóknari en svo. Hvergi var harkan, réttlát reiðin, ofsinn og geggjunin meiri en einmitt milli þeirra sem höfðu tekið sér stöðu á næstum því sama stað.”
― Sigurður Pálsson, Minnisbók
“Ég varð fyrir ámóta áhrifum í Leiklistarskóla SÁL nokkrum árum síðar þegar ég byrjaði að kenna þar og bað feimnislegan Hafnfirðing að gera smáspunaæfingu. Þegar hið feimna ungmenni gekk inn á sviðið tók hann hamskiptum, varð að einhverri sterkustu sviðsveru sem ég hafði séð. Hann heitir Sigurður Sigurjónsson.”
― Sigurður Pálsson, Minnisbók

All Quotes | Add A Quote
Minnisbók Minnisbók
167 ratings
Táningabók Táningabók
119 ratings
Bernskubók Bernskubók
93 ratings
Ljóð muna rödd Ljóð muna rödd
57 ratings